Æskan - 01.01.1968, Síða 42
>j4urninffar og, ói/or
C/Hedideýt átf
Hvað verða fiskarnir gamlir?
Kæra Æska. Ég he£ mikinn huga á öllu lífi í sjónum, og
þess vegna langar mig svo mikið til að fræðast um livað
fiskarnir geta orðið gamlir og annað um líf þeirra.
Jónas í Keflavík.
Svar: Það er bezt að byrja á laxinum. Hann lifir bæði i
fersku og söltu vatni, nær nærri 8 ára aldri, fjöldi þeirra
deyr þegar á 5. aldursári eða eftir að 1. hrygning hefur
farið fram. Elzti lax, sem vitað er um, veiddist í Skotlandi
og hafði þá hrygnt fjórum sinnum. Aftur á móti getur
silungur orðið 30 ára gamall eða meira. Sumir aðrir fisk-
ar, sem geta lifað í fersku vatni, verða mun eldri, svo sem
geddan og állinn. Geddan getur náð fimmtugsaldri og
álar, sem hindraðir hafa verið í því að hrygna, hafa náð
sjötugsaldri. Síldin verður kynþroska 3—5 ára og hrygnir
úr því árlega. I hreistri hennar, eins og margra annarra
fiska, koma fram baugar líkt og árhringir í tré, og af
þessum baugum er hægt að ráða, hve síldin er gömul.
Veiðzt hefur síld, sem náð hafði 25 ára aldri. Aftur á
móti er aldur þorsksins ákvarðaður eftir baugum þeim,
sem sjást í botnsárum kvarnanna. Elzti þorskur, sem
menn vita til veiddist við Noreg, og reyndist hann vera
26 ára. Flatfiskur getur náð miklu hærri aldri en síld og
þorskur. Til dæmis hafa 33 ára skarkolar fengizt við
Noreg. I Hvítahafi hefur veiðzt sá elzti skarkoli, sem um
er vitað, en hann var fertugur. Flyðran verður þó enn
eldri, því að fullvíst er talið, að hún geti haldið upp á
fimmtugsafmæli sitt, ef henni þóknast. Um hámarksald-
ur krabbadýra er lítið vitað. Álitið er, að rækjur verði
aðeins nokkurra ára gamlar. Sumir ætla, að humarinn
geti orðið gamall á krabba vísu, náð þrítugsaldri eða
meira. Steypireyðurin verður tvítug, en norðhvalurinn
mun aftur á móti ná 40 ára aldri.
Alls eru nú kunnar 12000 fiskategundir í heiminum
Lax nær nærri 8 ára aldri.
og af þeim finnast 162 tegundir hér við land innan við
400 m dýptarlínu, en sú dýptarlína er oftast látin ákveða
um sjávarfánu hvers lands. Fiskar lifa allt frá fjöruborði
og niður í 6000 m dýpi að minnsta kosti. Það er því engin
furða, þó að útlit þeirra sé margbreytilegt, skilyrðin eru
svo ólík. Margar tegundir ferðast mikið og fara oft geysi-
hratt yfir. En þetta eru sjaldnast skemmtiferðir, þær eru
blátt áfram lífsnauðsyn fyrir viðhald tegundarinnar. Það
er aðallega þrennt, sem veldur þessu flakki fiskanna:
fæðuleit, val hrygningarstöðva og hitabreytingar. Til
dæmis kemur þorskurinn í hópum saman síðari hluta
vetrar norðan fyrir land til þess að hrygna í hlýjum sjó
undan SV-ströndinni. Sumar fisktegundir halda sig við
land að sumrinu, en hverfa svo alveg á haustin, eins og
farfuglarnir, flestir til suðlægari hafa. Öllum fiskum er
skipt í 5 ættbálka, sem hér segir: Beinfiskar, gljáfiskar,
lungnafiskar, brjóskfiskar og hringmunnar. Hvorki gljá-
fiskar ná lungnafiskar lifa hér við land.
Dýflingur með geislabaug
Svar til Helgu: Dýrlingurinn
— })átturinn um ævintýri Sim-
ons Templars er elzti fasti þátt-
urinn í íslenzka sjónvarpinu og
áreiðanlega einn sá vinsælasti
og er það ekkert einsdæmi hér,
því hvarvetna ]>ar sem þessir
sjónvarpsþættir hafa verið
sýndir, Iiafa ]>eir náð jnikium
vinsældum.
Bækurnar um Dýrlinginn
voru mjög vinsælir reyfarar
hér fyrir allmörgum árum.
Höfundur hókanna var rithöf-
undurinn Leslie Charteris, og
halda sumir því fram, að
Dýrlingurinn sé sú mannvera,
sem höfundur hans hefði helzt
kosið að vei'a, en aðeins getað
skapað í imyndunarheimi reyf-
arans. Dýrlingurinn er eins
konar Hrói Höttur nútímans,
sem vel kann að meta lífsgæði
og þyrstir í ný ævintýri og
spennu.
Leslie Charteris, faðir Dýr-