Æskan - 01.01.1968, Síða 44
SPURNINGAR OG SVÖR
Svar til Þóru: Heila árganga
af Æskunni er hægt að fá
keypta ennþá, 1964, 1965, 1966
og árgang síðasta árs. Af eldri
árgöngum er hægt að fá einstök
hlöð. Utanáskrift Æskunnar er
Box 14, Reykjavík.
Svar til Guðnýjar: Bréfaskóli
SÍS og ASÍ býður kennslu í
35 mismunandi námsgreinum
nú l)egar, en nokkrar nýjar
námsgreinar eru i undirbún-
ingi. Skólinn veitir öllum tæki-
færi til að nota frístundir lil
að afla sér fróðleiks, sem allir
liafa gagn af. Allir geta gerzt
nemendur hvenær árs sem er
og er enginn hundinn við náms-
hraða annarra nemenda. Eft-
irfarandi erlend mál er hægt að
læra: Dönsku I, 5 bréf og Litla
dönskubókin. Námsgjald kr.
500,00. Danska II., 8 bréf og
Kennslubók í dönsku I. Náms-
gjald kr. 600,00. Danska III., 7
bréf. Kennslubók í dönsku III.,
lesbók, orðabók og stílhefti.
Námsgjald kr. 700,00. Enska I.,
7 hréf og ensk lesbók. Náms-
gjald kr. 650,00. Enska II., 7
bréf, ensk lesbók, orðabók og
málfræði. Námsgjald kr. 600,00.
Þýzka, 5 bréf. Námsgjald kr.
700,00. Franska, 10 bréf. Náms-
gjald kr. 700,00. Sænska, 10
bréf. Námsgjald kr. 700,00.
Esperanto, 8 bréf, lesbók og
framburðarhefti. Námsgjald kr.
400,00. Utanáskrift er: Bréfa-
skóli SÍS og ASÍ, Sambands-
húsinu, Sölvhólsgötu, Reykja-
vík.
Svar til Dóru á Akureyri: Bandaríski þjóðlagasöngvarinn Bob
Dylan er fyrir löngu orðinn þekktur meðal ungs fólks víða um
heim. Hann semur bæði lög og texta, en hann er þekktastur fyrir
ádeilukveðskap sinn. — Bob Dylan er nú 25 ára gamall og á þeg-
ar milljón krónur í bankanum, en hann græðir árlega um hundr-
að þúsund dollara á söngskemmtunum sínum, plötum og einnig
fær hann drjúgar tekjur af þeim lögum sínum, sem aðrir syngja
inn á plötur. I'egar hafa verið skrifaðar margar bækur um Bob
Dylan, og gerð hefur verið kvikmynd um daglegt líf hans, en þar
fyrir utan hefur hann tekið að sér þátt i sjónvarpinu.
Skírnarnafn Dvlans er Robert Zimmermann. Hann er fæddur í
Duluth í Minnesota, en ólst upp í Hibbing, sem er i norðurhluta
Bandaríkjanna. Faðir hans er efnaður kaupsýslumaður. í bernsku
hjálpaði Bob pabba sínum í verzluninni, ók með vörurnar og
hljóp með reikningana. Zimmermann sendi son sinn ofl til þeirra
íbúa borgarinnar, sem sparsamari voru, til að sýna honum aðra
hlið á lifinu. Dylan hafði mestan áhuga á að spila og syngja.
Dylan var mjög heimakær og sást sjaldan langt frá heimili sinu.
Hann lauk við gagnfræðaskólann og gekk seinna í liáskólann.
Fyrsta skipti, sem hann kom fram, var í unglingaklúhhi i Minnea-
polis, þar sem hann söng og spilaði á gítar og munnhörpu. Þá
byrjaði Dylan að klæðast annarlegum fötum. Jafnframt þvi safn-
aði hann hári. í desemher 1960 yfirgaf Bob Minnesota og fór
til New York til að reyna sig sem rokksöngvara. En fyrst i
stað voru allar dyr lionum lokaðar. En seinna batnaði hagur
hans, er liljómplötufyrirtæki eitt gerði við hann samning til
tveggja ára. Bob Dylan varð fyrst verulega frægur árið 1963, og
í dag hafa helzt yfir 10 milljón eintök af plölum hans og 150
listamenn liafa flutt lög lians á plötum.
KÆRA ÆSKA. Ég er einn af þínum 15 þúsund lesendum, og
nota hér tækifærið til að þakka þér fyrir þitt góða efni. Mér finnst
skemmtilegt að Iesa um ævintýri Miinchhausens, og þess vegna
langar mig að fræðast eitthvað um höfundinn, og fá upplýsingar
um hvenær Æskan fór fyrst að birta þessi ævintýri. Pétur.
Svar: Myndasagan af hinum heimsfrægu ævintýrum Karls Fr.
Hieronymus baróns af Múnehhausen byrjaði að koma hér i blað-
inu í febrúar 1964. Iíarl Fr. Hieronymus var fæddur 11. maí árið
1720 í Hannover í Þýzkalandi og lézt þar 1797. Hann var hermað-
ur að atvinnu og tók þátt i bardögum við Tyrki í Rússlandi að-
eins átján ára að aldri. Nokkru seinna var hann i lífvarðarsveit
Ivans Rússakeisara. En ekki virðist hann liafa fengið skjótan
l'rama i hernum, því að hann fékk ekki liöfuðsmannstign fyrr en
árið 1750. Sama ár hætti liann allri liermennsku og tólt við bús-
forráðum eftir lát föður síns. Þar sagði hann svo vinum sinum
ævintýralegar sögur, sem ekki aðeins lifðu á vörum fólksins,
heldur voru birtar á prenti og hafa síðan verið sígild verk í bók-
menntum lieimsins.