Æskan - 01.02.1968, Page 20
INGIBJORG ÞORBERGS
**
99
Gítarinn minn
66
J*:
í þessum þætti sendi ég ykkur lag, sem auðvelt er
að spila, hvort heldur er á píanó eða gítar. Þetta eru
skemmtilegar og gagnlegar vísur, þar sem sérkenni
hvers mánaðar koma fram. Öll börn verða að vita
hvað mánuðir ársins heita. Það má því segja, að þessi
þáttur sé aðallega ætlaður hinum yngri. Ég treysti því
þó, að þið, sem eldri eruð, hjálpið þeim litlu. Getið
þið það ekki, þá kannski mamma eða pabbi — eða
jafnvel kennarinn ykkar. — Það er skemmtilegra að
syngja lagið tvíraddað. Ef þið eruð tvö eða fleiri sam-
an, getið þið æft neðri röddina með laglínunni. Ég
heyri í huganum hvað þetta hljómar fallega hjá ykkur!
Jæja, nú er komið að því að æfa D-dúrinn. Þar er
auðvitað D-dúr frumhljómur, A7 forhljómur (eins og
G7 í C-dúr) og G (dúr) er undirforhljómur (eins og
F í C-dúr)/
Þið fáið hér teiknaða þessa þrjá hljóma. Annars
ættuð þið nú að kunna G og A7, en ef ekki, þá byrj-
ið strax að æfa! (Sjá blaðsíðu 78).
Það er bezt að æfa fyrst létt lag í D-dúr, eins og
t. d. ,,Það búa litlir dvergar", sem ég merki hér gripin
inn á. Önnur lög, sem þið kunnið nú þegar í C-dúr,
en finnst heidur djúpt að syngja þar, getið þið reynt
að færa upp í D-dúr, því þá hækkar lagið um heil-
an tón.
Svo vona ég, að þið haldið áfram að syngja og spila.
Kærar kveðjur!
INGIBJÖRG.
Mánuðirnir
LjóS: Steingrímur Arason — Lag: Ingibjörg Þorbergs.
c F G7 c
I ágúst slá menn engið, og börnin tína bcr.
. C F G7 C
í september fer söngfugl, og sumardýrðin þverr.
FG7C F G7 C
Ágúst, September.
o «9»
Sii
ss
:•
o*
%
C F G7 . C _
Tólf eru synir tímans, sem tifa fram hjá mér.
C F _ G7 C
Janúar er á undan með árið í faðmi sér.
F G7C F G7C
Janúar — Janúar.
C F G7 C
Febrúar á fannir. Þá læðist geislinn lágt.
C F G7_ C
Marz þótt blási’ oft biturt, þá birtir smátt og smátt.
F G7C FG7C
Febrúar, Marz.
C F G7 C
I október fer skólinn að bjóða börnum heim.
C F G7 C
1 nóvember er náttlangt í norðurijósa geim.
F G7 C F G7 C
Október, Nóvember.
C _ F G7 C
Þótt desember sé dimmur, dýrðleg á hann jól.
C F G7 C
Með honum endar árið, og aftur hækkar sól.
F G7 C F G7 C
Desember — Desember.
. C F C
f apríl sumrar aftur. Þá ómar söngur nýr.
C F G7 C
í maí flytur fólkið, og fuglinn hreiður býr.
FG7C FG7C
Apríl, Maí.
C F G7 C
í júní sezt ei sólin. Þá brosir blóma fjöld.
. C F G7 C
í júlí baggi’ er bundinn og borðuð töðugjöld.
FG7C FG7C
Júní, Júlí.
D»0#0«0*0*0*0«0»0*0*0*0*0*0(
0*0#0*0#0*(
76