Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1968, Page 24

Æskan - 01.02.1968, Page 24
JOHN F. KENNEDY KOSNINGABARÁTTAN — And- stæðingar Kennedys og Johnsons voru þáverándi varaforseti Bandaríkjanna, Richard Nixon, og Henry Cabot Lodge. Þetta var liörð kosningabarátta en drengi- leg, og notuðu báðar fylkingar öll tiltækileg tækifæri. í fyrsta sinn i sögu Bandaríkjanna leiddu andstæðingarnir saman hesta sina i sjónvarpsviðræðum til að skipt- ast á skoðunum um stjórnmála- viðhorfið. EMBÆTTISEIÐUR — Litlu mun- aði i kosningunum, en Kennedy og Johnson sigruðu með naumum meirihluta. Þann 20. janúar 1961 sóru Kenndy og Johnson embætt- iseiða sína, Kennedy sem forseti og Johnson sem varaforseti Bandaríkjanna til fjögurra ára. Samkvæmt amerísku lýðræði urðu þeir báðir að sýna það á þessu tímabili, að þeir væru þess verðir að verða endurkjörnir árið 1964. FRAMKVÆMDIR — John F. Kennedy forseti sannaði brátt, að stjórn hans myndi verða fram- kvæmdasöm. Eitt af því fyrsta, er hann tilkynnti opinberlega var áætlun um aðstoð við Suður- Ameríku ríkin. Hann lagði til, að ekki yrðu aðeins sendar þangað umframmatvælabirgðir heldur yrðu bændum þar einnig sendar fræbirgðir. Auk þess lofaði hann peningaaðstoð, sem nam allt að 500.000.000 dollurum. GóOtemplarareglan. Fyrsta íslenzka Góðtemplarastúkan var stofnuð á Akureyri árið 1884. Heildarsamtök Góðtemplarastúknanna, Stórstúka íslands, var stofnuð árið 1886. Fyrsta islenzka barnastúkan var stofnuð árið 1886 (stúkan Æskan nr. 1, Reykjavik). Innan Stórstúku ís- lands hafa barna- og unglingastúkurnar sitt eigið barnastúkuþing, ög því er stjórnað af stórgæzlumanni unglingastarfs, sem á sæti í Stórstúku íslands. Barnastúkurnar eru 65. Aldur félaga er 8—16 ára. Fjöldi félaga er 7720. Markmið Unglingareglunnar er: Að kenna þeim ungu að skilja þá hættu, sem leitt getur af nautn áfengis og tóbaks, og brýna fyrir þeim nauösyn bindindisstarf- seminnar. Að hafa áhrif á börn og unglinga til að verða bindindis- menn. Að fá æskulýðinn til að vinna samtaka gegn áfengis- og tóbaksnautn og fjárhættuspilum. Að vinna á móti Ijótu orðbragði og öðrum löstum og koma vel fram við mcnn og málleysingja. Að kenna börnum og unglingum að starfa í félagsskap og efla al- hliða félagsþroska þeirra. Að vinna að því að göfga æskumanninn og styðja hann í því að geta orðið góður og nýtur maður. Kjörorð Unglingareglunnar er: Sannleikur. Kærleikur. Sakleysi. Sérstök starfsemi, Ungtemplara, var stofnuð árið 1958 i nánum tengslum við Stórstúku íslands. Ungtemplarar vinna gegn áfeng- isbölinu, án þess að félagarnir séu eins bundnir binu hefðbundna fundaformi IOGT. Slík Ungtemplarafélög eru nú 12 talsins með um 1000 félagsmenn. Stórstúka íslands er aðili að Alþjóðasamtök- um IOGT, Hástúkan. Innan Stórstúku íslands eru nú 36 góðtempl- arastúkur, sem vinna saman í umdæmisstúkum. Félagafjöldi er 2879. Umdæmisstúkurnar eru nú þrjár (Reykjavik og nágrenni, Norðurland og Vestfirðir). í sérstöku þéttbýli vinna stúkurnar saman i þíngstúkum (t. d. Reykjavík, Eyjafjörður o. s. frv.). Þing- stúka Reykjavilsur starfrækir sumarbúðir að Jaðri við Reykjavík. Stórstúka íslands er samband allra deilda Góðtemplarareglunnar (IOGT) á íslandi. Hún skipuleggur starfshætti stúknanna og ann- ast fræðslustarfsemi um áfengismál og félagsstörf með erinda- flutningi, fræðsluritum og blaða- og bókaútgáfu. Alls hefur bóka- útgáfa Æskunnar gefið út um 150 úrvalsbækur handa börnum og unglingum og síðan árið 1897 hefur barnablaðið Æskan komið út, en það blað er nú gefið úl í 15 þúsund eintökum. Enn fremur bef- ur i mörg ár verið rekin myndarleg bókaverzlun i Reykjavík. Reglan liefur reist og starfrækir nokkur samkomuhús. ÆSKULYÐSSTARFSEMI

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.