Æskan - 01.02.1968, Qupperneq 25
Hættulegra en sverðið
Alexander mikli var voldugur herkonungur. Hann var
svo sigursæll, að ha'nn tapaði aldrei orrustu, og ríki
hans var viðlendara en nokkurs annars herkonungs, sem
sagan getur um.
Og þó féll hann að lokum fyrir óvini, sem hann hafði
ekki talið hættulegan.
Þegar hann var í Babýlon, hélt liann margar veizlur,
þar sem áfengi var óspart veitt.
Eitt sinn, er hann hafði setið heila nótt að sumbli, stakk
einhver upp á því, að þeir skyldu byrja á ný, — og var
svo gert.
Tuttugu gestir sátu við borðið, og Alexander drakk
skál þeirra allra, — tæmdi tuttugu staup í viðbót.
Að lokum var komið með bikar Herkúlesar, hann var
fylltur og tæmdur til botns. Bikarinn var fylltur öðru
sinni, og þegar Alexander hafði drukkið hann í botn,
íéll hann strax dauður niður. Hann var aðeins 32 ára
gamall.
Sagnaritarinn Seneca segir: „Og þannig lauk þessi hetja
lífi sínu, herkonungurinn mikli, sem hættur og ógnir
niargra styrjalda gátu aldrei bugað, og sem þoldi betur
en nokkur annar bæði liita og kulda. Hann varð áfeng-
inu að bráð, var gjörsigraður og lostinn til bana af bikar
Herkúlesar."
Alexander mikli var uppi þrjú hundruð árum áður en
Kristur fæddist. Og við, sem nú lifum, næsturn 2000
árum eftir fæðingu Krists, vitum, að ótölulegur grúi
manna hefur fallið fyrir sama óvini og Alexander ntikli.
S. G. — Þýtt og endursagt.
•o2S2S2*°*o*o«o*o«o*o*o*o*o*o«o*o*o*o*o*o»o«o*o*o*o*o*o«o*o»o«o*o*o«o«o*o*o«o*o*o*o«oío#o*o*o*o»o«o«o*o*o»o*o*o*o#o*o*o*o»o»o*o«o*o#oj»o*o*o*o«o*o«o*o«o«o*o*o»o*o*o*o*o*o*o*o«o«
'-,»u*0«0*0«0*0«0«0«0*0«0»0«0»0*0*0*0*0*0«0*0«0*0*0*0«0«0»0*0«0»0*0«0*0#0*0*0*0«0»0«0*C*0*0*0*0*0*0*0*0«0#0*0*0*0«0*0«0«0*0*0«0*0#0»0«0«0«0*0*0*0«0#0'ií»»0«0«0«0«0«0*0#0*0*0*0»0«C
Hvað finnst þér?
Klúbburinn okkar iiélt skemmt-
1111 Utn daginn. Fyrst var allt
stórfint. Seinna varð minna úr
■’kernmtuninni — fyrir mig. Þú
ti>nnast við þennan leik, þegar
allir eiga að láta af hendi ein-
J'vern lilut, sem stjórnandi
eiksins nefnir. í þetta skipti
'einitaði iiann hægri fótar skó
af kverjuni strák.
Það var gat á hælnum á
soklinum mínuin, og þar að auki
var ég ekki meira en svo hreinn
á fótunum. Ég sárskammaðist
mín.
Stundum finnst rnanni, að
mamma sé alltaf að jagast.
„Mundu nú eftir að þvo þér um
fæturna, áður en þú ferð. Farðu
i heila og lireina sokka.“ Ég
vildi, að ég liefði gegnt lienni
kvöldið það.
Við hittumst, félagarnir,
hérna um daginn niðri á torgi.
Þá fór S ... *— já, það stendur
á sama hvað hann heitir — að
langa i reyk og vildi að við út-
veguðum okkur sígarettur. Við
skutum saman fyrir einum
pakka. Ég vildi ekki vera eftir-
bátur liinna, þó að ég liefði ekki
reykt áður.
Ekki þurfti að híða lengi eft-
ir áhrifunum. Mig fór að svima
og maginn umhverfðist. Ég
læddist burt. Sjaldan hefur mér
liðið eins illa.
Ég held ég venji mig aldrei á
að reykja. Ég hef mikið liugsað
um þctta siðan um daginn. Ég
veit, að reykingar og iþróttir
eiga enga samleið. Og ég ætla
mér að stunda iþróttir, eins og
ég iief gert, og þá dugar ekki
annað en liugsa um þjálfunina.
Reykingar kosta lika mikla pen-
inga, og þeir peningar verða
bókstaflega talað að reyk.
Nancy og Elvis
Þess verður ekld langt að
biða, að því er nýlega var til-
kynnt vestur í Bandaríkjunum,
að þau leiki saman í kvikmynd,
Nancy Sinatra og Elvis Pres-
ley. Hafa. samningar um þetta
raunar verið undirritaðir. Nancy
Sinatra er nú 26 ára gömul, en
bessi kvikmynd verður hins
vegar sú tuttugasta og sjötta,
sem Presley leikur í.
8888888S8888888888888888SS385SS