Æskan - 01.02.1968, Síða 34
Arngr. Sigurðsson:
FLUG
'■‘f 1. nóv. gekk vetraráætlun
Flugfélags íslands í gildi. Sú
nýbreytni verður, að Douglas
DC-3 verður staðsett á Akur-
eyri, og mun hún halda uj)pi
samgöngum milli staða norð-
anlands og austan. Nær allar
innanlandsferðir verða að öðru
leyti farnar með Fokker Friend-
ship.
Innlendur
'■‘f 15. nóv. fluttu flugvélar frá
Flugsýn 4896 lítra af mjóllc til
Vestmannaeyja.
5. desember hrapar eins-
hreyfils flugvél af gerðinni
Piper Cherokee í Vatnsmýrina
rétt hjá Norræna húsinu. Flug-
vélin var eign Flugsýnar, TF-
AIT. Þetta gerðist í myrkri kl.
16:15, þegar flugvélin var í
flugtaki, en gangur mótorsins
var ekki eðlilegur. Mennirnir
tveir, sem i flugvélinni voru,
hlutu furðu litla áverka. Jörð
var snævi þakin. Flugvélin er
stórskemmd.
'■^1 í desember skýra bæði stóru
flugfélögin frá J»ví, að vöru-
flutningar með flugvélum félag-
anna hafi stóraukizt.
0*0*0#QfO*0*0»0#0«0«OtOfo#o#o»o*o«o«o*o»o»o
tototototototototototototototototototototot
90
í tilefni af 40 ára afmæli Atl-
antshafsflugs Lindberglis flug-
kappa — en hann flaug aleinn
frá New York án viðkomu til
Parísar dagana 20.-21. maí 1927
— spyr hr. Björn Ólafsson,
hvort Lindbergh hafi noltkurn
tíma komið til íslands. Jú, mér
er kunnugt um eitt skipti, og
Iýsir Alexander heitinn Jóhann-
esson prófessor þessari heim-
sókn Lindberghs í hinni
skemmtilegu bók sinni „í lofti“.
Lindbergli kom til Reykja-
víkur 15. ágúst 1933 og lenti á
Viðeyjarsundi kl. liálfátta um
kvöldið. í för með honum var
kona hans. Þau flugu hingað
frá Angmagsalik og tóku stefnu
á Vestfirði og flugu síðan suð-
ur um. Mikill mannfjöldi var
saman kominn í Vatnagörðum,
þegar það vitnaðist, að þeirra
hjóna væri von. En Lindbergli
var ekki um það gefið, að
mannfjöldi ]»yrptist í kringum
liann. Þennan dag var norð-
vestan stinningskaldi og tals-
verðar öldur á ytri höfninni í
Reykjavík. Var honum því sent
skeyti um, að bezt væri að
lenda inni í Vatnagörðum eða
á Skerjafirði. Var honum fagn-
að og þeim lijónum af fulltrú-
um bæjarins og umhoðsmanni
Pan American Airways félags-
ins, en um þessar mundir var
Lindhergli ráðunautur þess fé-
lags.
Mannfjöldinn laust upp fagn-
aðarópum, en er þau höfðu ek-
ið nokkurn spöl frá flugskýl-
inu áleiðis til Reykjavíkur, ósk-
uðu þau að snúa aftur i Vatna-
garða, og stóð ]»á heirna að all-
ur mannfjöldinn var farinn til
Reykjavikur.
Björn Bjarnason i Viðey
hafði aðstoðað við lendingu
flugvélarinnar og var á heim-
leið í vélbáti sinum, er hann
sá Lindberghslijónni á bryggj-
unni í Vatnagörðum. Sneri
hann þá við til þeirra, en þau
báðu hann um gistingu. Héldu
þau síðan til Viðeyjar og dvöldu
hjá Birni þann dag og daginn
eftir. Vildu þau sem minnst
láta fyrir sér hafa.
17. ágúst flugu þau til Reykja-
vikur, en daginn áður höfðu
þau skroppiö á pósthúsið i
Reykjavik, og er það vitnaðist,
að Lindbergh væri kominn í
bæinn, þyrptist múgur manns
fyrir utan til þess að sjá hann,
er liann kæmi út. En hann sá
við þessu og fór út um aðrar
dyr.
Þau hjónin dvöldu 5 daga í
Reykjavík og voru þar í boði,
m. a. hjá forsætisráðlierra, en
frú Lindbergh fór cinn daginn
austur að Þingvöllum. Var orð
á því gert af þeim, sem kynnt-
ust Lindbergli, hve yfirlætislaus
hann var, alþýðlegur og hisp-
urslaus og mótli á engu sjá, að
hann liti á sig öðrum fremri.
En er minnst var á flugferðir,
tindruðu augu lians; mátti þá
kenna, að áliugi hans á þessuni
málum var óskiptur.
Flugvél Lindberghs liafði að-
eins einn lireyfil, 750 hestafla,
en hraði flugvélarinnar var 290
—350 km/klst. Á þessari flug-
vél liafði liann meðal annars
flogið yfir Grænlandsjökul, og
á þessari flugvél flaug liann síð-
an víða um lönd, um öll Norð-
urlönd, til Englands, Hollands,
Belgiu og viðar. Loks flaug
hann til Vestur-Afríku og það-
an yfir hafið til Brasilíu. Hann
ltvað svo að orði, að hreyfill
flugvélar sinnar væri svo gerð-
ur, að hann gæti ekki bilað. I
i'ullu trausti þess flaug hann
óraleiðir án þess að nokkurt
óhapp kæmi fyrir.
Þau hjón flugu frá Reykjavik
22. ágúst til Eskifjarðar, en
munu á þeirri ferð hafa flogif*
tvisvar yfir landið, fyrst til
Eyjafjarðar og siðan aftur suð-
ur yfir, en 6 stundir tæpar voi'U
]»au á þessari ferð. Daginn eftir
Þessi mynd var tek-
in rétt eftir lend-
ingu Lindberghs-
hjónanna á Viðeyj-
arsundi við Reykja-
vík 15. ágúst 1933.
•0»0*0#u