Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 68
ÆSKAN er stærsta og fjölbreyttasta barna- og ungl-
ingablaðið á íslandi í dag. Hún flytur ávallt mikið
af hollum fróðleik, innlendum og erlendum, og öðru
skemmtilegu lesefni við hæfi barna og unglinga, svo
sem: Skemmtilegar framhaldssögur, smásögur, fræð-
andi greinar, margs konar þætti, t. d. íþróttaþátt, Frí-
merkjaþátt, Heimilisþátt, Flugþátt, Handavinnuþátt,
Dýraþátt, Spurningar og svör, Esperanto, þátt um
uppfinningar og framfarir, Kvikmyndastjörnur, Teikni-
kennslu, framhaldsmyndasögur og margt fleira. — Ár-
gangurinn kostar aðeins 250 krónur.
Sýnið foreldrum ykkar og öðru venzlafólki þessa
orðsendingu og fáið leyfi þeirra til að gerast kaup-
endur strax í dag. Minnizt þess, að eftir því sem
áskrifendum ÆSKUNNAR fjölgar, verður blaðið stærra
og fjölbreyttara. — Takmarkið er, að ÆSKAN komist
inn á hvert barnaheimili landsins.
Ég undirrit......... óska að gerast áskrifandi að
ÆSKUNNI.
Nafn: ..............................................
Heimili: ...........................................
Póststöð: ..........................................
Sími 1 73 36, pósthólf 14, Reykjavík.