Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 8

Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 8
 Útgáfa Æskunnar Kristján Guðmundsson Árið 1930 hóf ÆSKAN útgáfu á unglingabókum sínum og hefur gefið út síðan um 170 bækur. Bækur ÆSKUNNAR hafa jafnan átt miklum vinsældum að fagna meðal æsku- fólks, enda hefur ekkert verið til sparað til að gefa út svo góðar og vandaðar bækur að frágangi sem bezt má verða. Fyrsta bókin, sem ÆSKAN gaf út, var SÖGUR ÆSKUNNAR eftir Sigurð Júl. Jóhannesson, fyrsta ritstjóra blaðsins. Á þessu hausti verða gefnar út 8 bækur, og er ölium skuld- lausum áskrifendum blaðsins gefinn kostur á að kaupa allar útgáfubækur blaðsins og líka aðrar þær bækur, sem blaðið hefur til sölu, með sérstökum kostakjörum — við um það bil 30% lægra verði en búðarverð. Kristján Guðmundsson hefur verið framkvæmdastjóri út- gáfunnar frá árinu 1962. Að öllum sambærilegum blöðum og tlmaritum ólöst- uðum, er Æskan tvímæla- laust bezta barnablaðið, sem út er gefið á íslandi í dag. Flytur það ávallt mik- ið af hollum fróðleik, inn- lendum og útlendum, og öðru skemmtilegu lestrar- efni fyrir börn, og reyndar ættu fullorðnir einnig að hafa yndi af að lesa þetta vandaða og góða blað, enda á það stóran og slvaxandi lesendahóp viðsvegar um land. í Keflavík munu nú vera hátt á fimmta hundrað kaupendur að Æskunni og sífellt bætist við þann hóp. Þannig mun það einnig vera á öðrum útsölustöðum á Suðu’-nesjum. Faxi vill með þessum linum hvetja unga sem aldna til að Ijá þessu merka útgáfustarfi lið með þvl að fjölga enn kaupend- um þess, svo það verði helzt keypt og lesið á a hverju heimili. _________________ Blaðið Æskan er nýkomið úf, glæsilegt að vanda. Meðal efnis í þessu blaði má sérstaklega benda á leiðbeiningaþáttinn um glt- arleik, sem hin kunna út- varpskona Ingibjörg Þor- bergs annast, auk ótal þátta um a|lt milli himins og jarð- ar, að ónefndum hinum vin- sælu myndasögum Æskunn- ar. Kjörorð Æskunnar hef- ur verið Æskan inn á hvert heimili, og þessu takmarki ætti Æskan að ná, ef hún heldur áfram á þeirri braut, sem hún er nú á hvað snert- ir fjölbreytni og gott les- efni. Frjáls þjóð, 1968. Æskan á erindi inn á hvert heimili landsins. At- hygli skal vakin á því, að Æskan er stærsta og vand- aðasta barnablað, sem gef- ið er út á Norðurlöndum. Framsóknarblaðið í Vestmannaeyjum. Yfirleitt er Æskan svo fjölbreytt að elni og skemmtileg að frágangi að furðu sætir, og ber ritstjóra slnum Grími Engilberts fag- urt vitni. Vafasamt er, hvort nokkurn tíma hefur komið út skemmtilegra barnablað á islandi. Morgunblaðið. Hvert blað Æskunnar er gríðarf jölbreytt, og sýnist eins og ritstjóri hennar vinni hvert kraftaverkið á fætur öðru við blaðið. Það er undravert, að hægt sé að gefa út svona fjölbreytt barna- og unglingablað á ís- landi, enda sýnir útbreiðsla Æskunnar, að unga fólkið kann vel að meta hana. Morgunblaðið. Síðasta tölublað Æskunn- ar hefur borizt blaðinu, geysifjölbreytt að vanda. Ritstjóri Grímur Engilberts sýnir enn einu sinni, að hægt er að gefa út skemmti- legt blað fyrir börn og ungl- inga á íslandi. Þjóðviljinn. Vestfirðingi hefur borizt barnablaðið Æskan. Eins og ætíð er þetta blað fjölbreytt að efni og í því margar skemmtilegar og fallegar myndir. Æskan er elzta barnablaðið hér á landi, og hún er jafnframt bezta barnablaðið. Vestfirðingur á ísafirði. Síðasta hefti Æskunnar hefur borizt, að vanda með margvíslegu vönduðu efni, sem of langt yrði hér upp að telja. Upplag blaðsins er um 16.000 eintök, og segir það alla sögu um vin- sældir blaðsins, en enda þótt það sé vitaskuld mest lesið af börnum og ungling- um, þá er einnig víst, að það á öruggan lesendahóp meðal fullorðinna. Og það þarf vlst ekki að skýra fyrir neinum, að blað, sem nýtur vinsælda fólks á öllum aldri, er vel úr garði gert. Verkamaðurinn á Akureyri. 16 þúsund eintök Finnbogi Júlíusson Það sýnir bezt, hversu mikilla vinsælda ÆSKAN nýt- ur meðal æskulýðsins á íslandi, að blaðið er i dag prent- að í sextán þúsund eintökum, og mun þá láta nærri, að 75 þúsundir manna lesi það. Mun það vera lang- hæsta kaupendatala, sem nokkurt barnablað hefur nokkru sinni haft hér á landi og met á öllum Norðurlöndum hjá barnablaði, þegar miðað er við fólksfjöldann. Útbreiðslu- stjóri ÆSKUNNAR siðustu árin hefur verið Finnbogi Júlíus- son, og fyrir giftusamlegt starf hans er að nálgast það langþráða takmark, að upplagið nái 20 þúsundum, og að þá verði ÆSKAN gestur á öllum barnaheimilum iandsins. 424
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.