Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 43

Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 43
SKÁTAHEITIÐ # Ég lofa að gera það sem í mínu valdi stendur til þess: # Að gera skyldu mína við Guð og ættjörðina # Að hjálpa öðrum Baden-Powell # Að halda skátalögin Lady Baden-Powell HYAÐ þarf ég að gera til þess að verða skáti? Oft hefur þessi spurning verið borin fram, og misjafnlega hefur henni verið svarað, og þá af þeim sem minnst vissu deili á þessu máli. Ég man þá tíð, að sumir héldu því fram, að maður þyrfti að ganga svo og svo marga kílómetra og klífa fiöll og tinda, aðrir sögðu, að það yrði að lesa heil ósköp og taka mörg próf og þung. Nú vita allir, að kílómetrarnir og próf- in eru aukaatriði, það sem máli skiptir er viss kunnátta í skáta- fræðum. Sá lærdómur er aðallega fólginn í að undirbúa sig til að geta farið í útilegur lengri eða skemmri tíma, án þess að stofna sjálfum sér f voða eða valda öðrum vandræðum. Við þenn- an undirbúning stofna skátarnir sérstaka flokka, sem halda síðan hópinn. Flokkarnir taka að sér ýmis verkefni, sem eru leyst með samstarfi allra félaganna. petta eru yfirleitt frjáls verkefni, sem allir hafa gaman af að glfma við. Verkefnin eru fjölbreytt, allt frá þvi að hnýta nokkra hnúta upp i að halda leiksýningu á frumsömdu efni á skátamóti. Jafnframt þessu læra skátarnir sitthvað um helztu æviatriði stofnandans, Baden-Powells, og upphaf og sögu skátahreyfingarinnar. Hvernig hófst svo þetta starf, hvað var upphafið að þessari stærstu æskulýðshreyfingu, sem stofnuð hefur verið? Hreyfingu, sem nær til allra trúarbragða og kynþátta en felur i sér þann boðskap, að: Allir skátar eru góðir lagsmenn. Hreyfingin á upp- tök sín í útilegu, sem Robert Baden-Powell, frægur enskur hers- höfðingi, hélt á lítilli eyju i ánni Thames árið 1907. Hann safnaði saman nokkrum drengjum, sem höfðu mjög mis- iafna menntun, höfðu alizt upp við ólik skilyrði, voru bæði frá fátækum og ríkum heimilum. Hann vildi sanna það, að allir þessir ólíku aðilar gætu orðið vinir og samherjar, þrátt fyrir allan þann tttikla mismun, ef þeir einungis fengju leiðsögn og þjálfun, lærðu að virða hvern annan og bera sameiginlega ábyrgð á störfunum. Þarna var „Flokkakerfið" reynt í fyrsta sinn, og allt starf fór fram samkvæmt því. Hver flokkur hafði sitt eigið svæði, og B.P. 9erði allt sem hægt var til þess að efla flokksandann — anda vináttu og einingar. Drengirnir tóku mjög vel leiðsögn hans, þeir voru fljótir að skilja, hvað það var að „vera viðbúinn". Þá sá Baden-Powell, að tilraunin hafði heppnazt, og hann fór að vinna að nánari skipulagningu skátastarfsins. Hann samdi bókina „Scouting for Boys", sú bók er til í íslenzkri þýðingu og heitir „Skátahreyíingin". Þá bók ættu allir að lesa, sem vilja kynnast þessu máli. Baden-Powell hætti nú herþjónustu og helgaði skátahreyfing- unn'i alla starfskrafta sína upp frá því. Skátastarfið býður upp á marga möguleika sem „þúsund þjala smiður", þ. e. vita deili á ýmsu og kunna á því skil, svo maður sé fær um að hjálpa bæði sjálfum sér og öðrum, þegar þörf krefur. Hin fjölmörgu skátapróf, útilegur og æfingar eru til þess fallin að skáti geti „verið við- búinn". 459
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.