Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 23

Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 23
Tölur Á miðju ári 1967 var tala jarðarbúa 3.420 milljónir. Er það 516 milljónum meira en á miðju ári 1958. Þrír fjórðu hlutar jarðar- búa eiga heima í vanþróuðu löndunum. Á miðju ári 1967 skiptust jarðarbúar þannig niður á svæði (nýrri tölur eru ekki fyrir hendi um alla heimsbyggðina): Heimurinn allur 3.420 millj. Afríka 328 millj., Norður-Ameríka 220 millj., Rómanska Ameríka 258 millj., Austur-Asía 877 millj., Suður-Asía 1030 millj., Evrópa 452 millj., Kyrrahafssvæðið 18 millj. og Sovétríkin 236 millj. Tvö fjölmennustu ríki heims, Kínverska alþýðulýðveldið og Indland, voru talin hafa 720 milljónir og 511 milljónir íbúa. Sé litið á þéttbýlið, er Evrópa efst á blaði með 92 íbúa á hvern ferkílómetra að meðaltali. Samsvarandi tala fyrir Asíu er 69. Meðal þeirra landa sem mest hafa svigrúmið, eru Island og Ástralfa, hvort ' um sig með 2 íbúa á ferkílómetra. Sam- svarandi tölur fyrir Danmörku eru 112, Noreg 12, Finnland 14 og Svíþjóð 17. ÞÓRA M. STEFÁNSDÓTTIR: LÓA litla landnemi 5. Lóa kemst í lifsháska Einu sinni um vetur biður mamma Lóu að skreppa fyrir sig ofan að fljóti og sækja vatn í fötu. Lóa var fús til þess, því hún var alltaf viljug að hjálpa mömmu sinni. Tók hún fötuna í liönd sér og hljóp út úr dyrunum og á spretti ofan brekkuna og ofan að fljóti, sem rann nokkuð fyrir neðan bæinn. En ferðin var svo mikil á henni og hált á bryggj- unni, að hún hljóp beint fram af henni og á bólakaf ofan í vatnið. Henni vildi það til lífs, að þegar henni skaut upp, sneri andlit hennar að bryggjunni. Náði hún taki á henni og gat kliírað upp úr vatninu. Enginn sá til hennar, og hefði hún drukknað þarna, ef ekki hefði vifjað svona heppilega til, að hún snerist við i vatninu og kom upp á þennan hátt. Hún kom hold- vot inn til mömmu sinnar, sem bað guð að hjálpa sér, þegar hún sá hana. Hún háttaði hana ofan í rúm og gaf henni heifa mjólk að drekka og hresstist hún brátt. Lofaði hún mömmu sinni því, að gæta sín framvegis að detta ekki í fljótið. 6. Jólin í Nýja-lslandi Byggðin, þar sem Lóa átti heima, var nefnd Nýja-ísland, enda voru þar á þeim árum eingöngu íslendingar. Von bráðar komu Ný-íslendingar sér upp samkomuhúsi, sem einnig var notað sem kirkja. Nú ætla ég að lýsa fyrir ykkur jólum í Nýja-íslandi, eftir að samkomuhúsið var reist. Á aðfangadagskvöld fór öll fjölskyldan í Skógum til aftan- söngs. Þau þurftu að fara langa leið og fóru þau á sleða, því að djúpur snjór var á jörðu. Pabbi var ekillinn, en mamma og börnin sátu á sleðanuin, dúðuð vel, til varnar gegn kuldanum. Nú var ekið með bjölluhljómi yfir snjóbreiðurnar, gegnum glitrandi hvítan skóginn, unz komið var að uppljómuðu sam- komuhúsinu. Þar voru fjölskyldur frá flestum heimilum byggð- arinnar komnar, og allflestar á sleðum. Sprett var af, og fólkið — Saga frá Nýja-íslandi — 439
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.