Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 14

Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 14
Jóhanna Þau upplifðu ævintýrið Jóhann I^mörg undanfarin ár höfðu Flugfélag íslands og Æskan efnt til verðlaunasamkeppni, þar sem utanlandsferð voru fyrstu verðlaun. Mörg lönd höfðu verið heimsótt, margar borgir skoð- aðar og ótalin ævintýri höfðu þau upplifað, börnin sem vegna dugnaðar sins og heppni höfðu hreppt þessi eftirsóttu verðlaun. Kaupmannahöfn, London, Osló, Glasgow, Edinborg, Þórshöfn, Bergen og Voss. Alla þessa staði og marga aðra sögufræga og (agra, svo sem Loch Lomond, Tinganes og Hvivik i Færeyjum að ógleymdum sjáifum Kirkjubæ, höfðu börnin séð á þessum ferða- lögum, og þau höfðu ekið ævintýralegar leiðir; með neðanjarðar- neti Lundúnaborgar og upp i Spíralinn hjá Drammen og með svifbrautinni upp á Uirekken við Bergen. Frásagnir af öllum þess- um ævintýraferðum hafði Æskan flutt, og í nokkur undanfarin ár höfðu verðlaunaferðir barnabiaðsins Vorsins á Akureyri og Flug- félagsins verið sameinaðar Flugfélags-Æskuferðunum, svo að börnin voru tvö í hverri ferð. Það var ennþá meira gaman. Allt þetta og miklu fleira vissi Jóhanna Margrét Þórðardóttir, Bakka- stíg 16 í Vestmannaeyjum, þegar hún ákvað að taka þátt í verð- launasamkeppni á öndverðum síðasta vetri. Og Jóhann Tryggvi Sigurðsson, Búlandi í Eyjafjarðarsýslu, sem ákvað að taka þátt í ritgerðasamkeppni Flugfélagsins og Vorsins um svipað leyti, haíði einnig haft nánar fregnir af þessum ferðalögum. Það var um miðjan dag hinn 25. júni, að siminn hringdi heima hjá Jóhönnu að Bakkastíg 16 í Vestmannaeyjum. Hrönn móðir Jóhönnu fór i símann, og henni til mikillar furðu var það Flug- félag islands í Reykjavík, sem hringdi. Það var spurt eftir Jó- hönnu Margréti. Hún var ekki heima. Var að vinna í frystihúsinu en kæmi heim um kvöldmat. í símanum voru þeir Grimur Engil- berts ritstjóri Æskunnar og Sveinn Sæmundsson blaðafulitrúi Flug- félagsins. Um 1600 lausnir höfðu borizt i verðlaunasamkeppf' Æskunnar og Flugfélagsins. Þar af voru tæplega 900 réttar. Nu hafði verið dregið úr réttum lausnum, og upp kom nafn JóhönnU Margrétar. Hrönn móður hennar var því tilkynnt, að Jóhanna hefði unnið fyrstu verðlaun, sem væru ævintýraferð til Kaupmanna- hafnar og þaðan til Odense, æskuheimilis ævintýraskáldsins H. c' Andersens. Ferðin yrði farin 8. júlí. Meðan þessu fór fram keppt>sl Jóhanna við vinnu sina í frystihúsinu og grunaði sízt, hvaða aevin- týri biðu hennar. Hún varð í fyrstu orðlaus, er hún heyrði frétt- irnar en síðan ákaflega glöð, og bað pabba sinn að hringja til Sveins hjá Flugfélaginu og segja honum, að henni væri ekkert að vanbúnaði að fara ferðina. Óg svo hófst tími undirbúnings og tilhlökkunar. j bréfi frá Flugfélaginu hafði Jóhönnu verið sagt> að hún þyrfti að kema til Reykjavíkur ekki síðar en degí áður @n ferðin hæfist, og fyrst Jóhanna þurfti að fara til meginlandsins ákvað fjölskyldan að nota tækifærið og fara sína áriegu ferð til Reykjavíkur og kannski 'engra. Sumarfríið var þar með ákveðifr Jóhann Tryggvi Sigurðsson fékk vitneskju um sigur sinn í rit' gerðasamkeppni Vorsins og Flugfélagsins með bréfi. Einnig hann varð ákafiega glaður við og undirbúningur ferðarinnar hófst. Ferðasaga þeirra Jóhönnu og Jóhanns hefst raunverulega ú Reykjavíkurflugvelli, þar sem þau mæta kl. 1:30 þriðjudaginn 8’ júlí og hitta þar Grím Engilberts og Svein Sæmundsson ferða- j flugstjórnarklefanum. Jóhann. Skúli flugstjóri og Jóhanna. Jóhönnu og Jóhanni fannst ótrúlegt að þjóta svona í háloftunU,íl- 430
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.