Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 5
3
K
Kristján Bersi Olafsson,
ritstjóri Alþýðublaðsins,
skrifar:
Æskan var meðal þeirra
blaða, sem ætíð bárust
reglulega á heimili mitt,
þegar ég var að alast upp,
og auk þess var þar til þó-
nokkuð at innbundnum ár-
göngum af blaðinu frá fyrri
tið. Ég efast um að ég hafi
vitað annað lesefni skemmti-
legra en þessi blöð.
Á sjötugsafmæli Æskunn-
ar er mér því efst í huga
þakklæti fyrir alla þá
skemmtun sem blaðið veitti
mér fyrr á árum. Og ég veit
vel að ég er engan veginn
einn um það að eiga Æsk-
unni mikið að þakka. Um
sjötíu ára skeið hefur blað-
ið verið einn helzti uppal-
andi landsins; núlifandi kyn-
slóðir Islendinga hafa all-
ar að meira eða minna leyti
nærzt á Æskunni á upp-
vaxtarárum sínum, alizt upp
á þeim fróðleik og þeirri
skemmtan, sem þar hefur
verið að finna, og ég held
að það sé ekkert ofmælt
þótt ég fullyrði að boðskap-
ur Æskunnar frá fyrstu tið
hafi verið börnum og ungl-
ingum hollt viðurværi.
Auðvitað eru allt aðrir
tímar nú en voru fyrir sjö-
tíu árum þegar Æskan hóf
göngu sfna. Það má vera
að blaðið hafi að sínu leyti
verið áhrifarlkara fyrstu ára-
tugina, náð til hlutfallslega
fleiri ungmenna en nú, ein-
faldlega af því að þá var
fjölþreytnin minni, færra til
að dreifa huganum en nú
er. En hvernig sem þessu
kann að vera háttað þá er
Æskan áhrifamikið blað enn
þann dag í dag og engin
ellimörk á því að finna. Af-
mæliskveðja mín til blaðs-
ins hlýtur að vera sú að
því megi auðnast lengi enn
að viðhalda æsku sinni og
verða áfram eftirsótt les-
efni yngstu kynslóðinni í
landinu.
Kristján Bersi Ólafsson.
Með fangið fullt af
fyrirheitum.
Afmælisósk til ÆSKUNN-
AR frá Morgunblaðinu.
Bernskuminning kemur
fyrst upp í hugann þegar
staðið er frammi fyrir þeirri
staðreynd að barnablaðið
Æskan eigi 70 ára afmæli.
bað er von á „póstbátn-
um‘‘. Koma hans, einu sinni
eða tvisvar í viku, ( af-
skekkta ey vestur á ísa-
fjarðardjúpi er mikill við-
burður. Eyjabörnin hafa
gerzt áskrifendur að blaði.
Þau eiga von á þvi með
bátnum. Þetta er þeirra eig-
ið blað. Æskan heitir það
Nafnið er bjart og Ijúft,
minnir á ævintýr, og kemur
með fangið fullt af fyrir-
heitum.
f þessu litla þlaði eru
sögur og Ijóð, gestaþrautir,
gátur og þulur, myndir af
fólki og dýrum. Eyjabörnin
lesa blaðið aftur og aftur,
geyma það og hlakka til
þess að næsta eintak þess
komi.
Svona var þetta þegar
við, sem nú erum miðaldra,
vorum ung. Og svona er
þetta enn þann dag ( dag.
Æskan, blað bernsku okk-
ar, gleður nú nýja kynslóð,
kynslóð, sem á útvarp og
Sigurður Bjarnason
sjónvarp, leikhús og félags-
heimili. Hún heldur áfram
að koma með fróðleik og
skemmtun til barnanna á ís-
landi. Þau vilja ekki missa
hana. Þau biða hennar með
eftirvæntingu eins og við
gerðum. Hjarta þeirra gleðst
eins og okkar hjarta.
Þannig er þetta vegna
þess, að Æskan er og verð-
ur ávallt ung, hversu mörg
ár sem hún lifir, ef hún að-
eins heldur þeim rétta tón,
sem hrærir strengi í ungu
brjósti, er geymir hljómfeg-
urstu hörpu í heimi.
Morgunblaðið hyllir Æsk-
una á tímamótum og árnar
henni áframhaldandi ást-
sældar barna og unglinga
komandi kynslóða.
Sigurður Bjarnason
frá Vigur.
Bjarni Þórðarson, riístjóri
Austurlands í Neskaupstað,
skrifar:
i sjötiu ár hefir barna-
blaðið Æskan verið kær-
kominn gestur á heimilum
íslenzkra barna og ung-
menna. Blaðið hefir jafnan
kappkostað að flytja fjöl-
breytt og vandað efni og
verið I stöðugri sókn og
hefir nú náð þeirri fullkomn-
un, að lengra verður trauðla
komizt við þau skilyrði, sem
fyrir hendi eru. Gildir það
ja<nt um efnisval og ytri
Bjarni Þórðarson
búning. Hin mikla útbreiðsla
blaðsins sannar líka, að þvi
hefir tekizt að ná til ís-
lenzkra barna og öðlast hylli
þeirra.
Æskan hefir án efa haft
mikið uppeldislegt gildi og
verður það seint metið að
verðleikum. Blaðið hefir haft
mikil áhrif á hugsunarhátt
barnanna, göfgað þau og
bætt með hollu og vönd-
uðu lestrarefni, vakið áhuga
þeirra á margvíslegum við-
fangsefnum og beint at-
hafnaþrá þeirra inn á hollar
brautir. Æskan hefir jafnan
leitazt við að flytja efni,
sem i senn hefir verið til
fróðleiks og skemmtunar.
Fyrir allt þetta stendur ís-
lenzka þjóðin i mikilli þakk-
arskuld við blaðið.
Vikublaðið Austurland
•eyfir sér að flytja Æskunni
þakkir fyrir ómetanlegt starf
í þágu barna og unglinga í
sjötíu ár. Og það væntir
þess, að Æskan megi hér
eftir sem hingað til verða
aufúsugestur á heimilum is-
lenzkra ungmenna, og það
/erður Æskan, ef hún held-
ur áfram eins og nú horfir,
og ekkert bendir til, að þar
á verði breyting. Þá verður
Æskan áfram þýðingarmikið
tæki til að móta hugsunar-
hátt yngstu kynslóðarinnar,
til að gera hana betri og
hæfari til að gegna hlutverki
sínu sem góðir íslendingar. <
_____________
421