Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 41
PÓST
SVIFFLUG
Þann 8. ágúst s.l. fór Svifflugfélag Islands
sérstakt póstsvifflug frá Hellu á Rangárvöllum
til Reykjavíkur.
Tilefnið var að liðin voru 30 ár frá því að fyrst
hafði verið farið með póst í svifflugu frá Sand-
skeiði til Reykjavíkur.
Það var tékknesk tveggja manna fluga, sem
flutti póstinn að þessu sinni, og birtum við hér
mynd af flugunni og svo af kortinu, sem flugan
flutti.
Þeir eru nú að verða margir hér á landi, sem
safna alls konar sérflugum, en auk þess eru
margir erlendis, sem safna ekki aðeins sérflug-
um, heldur einnig svifpóstflugum sérstaklega.
i sænska þorpinu Hanosag í suðurhluta Svíþjóðar
býr fullorðin kona, sem allmjög sker sig úr hópi
jafngamalla kynsystra sinna.
Þegar vinkonur hennar safnast saman í kirkjunni,
fara á kvenfélagsfund, eða í boð, fer hún í æfinga-
búning sinn, sem fer henni einstaklega vel, þrátt
fyrir að hún sé orðin sextíu og átta ára gömul. Sú
gamla hefur mikinn áhuga á knattspyrnu, og ver
markið i frístundum sínum. Hún þykir standa sig
einkar vel í markinu, til dæmis hefur hún ekki þurft
að sækja boltann í netið nema fjórum sinnum í
siðustu sex leikjum sinum.