Æskan - 01.11.1971, Blaðsíða 76
D
☆ ☆
☆ ☆ ☆.
Jólaskraut
úr pappír
og karton
Efnið í þetta jólaskraut, sem þið sjáið hér á meðfylgjandi
myndum, er: stinnur glanspappír ( ýmsum litum, t. d. rauðum,
gulum, grænum og bláum, karton, einnig í ýmsum litum, málm-
pappír, bæði með gull- og ál-lit, pípuhreinsarar, títuprjónar,
bréfaklemmur og límtúba. —
Númer 1, 2, 3 og 4 er gert úr papplrsræmum, t. d. úr ál-
papplr, og endarnir settir fastir með lími. Nr. 5, andlit á jóla-
sveini, er klippt út úr karton, og skeggið, stjarnan og nef, augu
og munnur höfð úr pappír í öðrum lit en andlitið. Takið eftlr
þvi, að ef þið snúið skegginu upp á við, verður karlinn giaðlegri
á svipinn, en súrari, snúi skeggið niður á við (sjá mynd). Nr. 6:
stjörnuoddunum er komið fyrir með því að klippa rifur bæði f
stjörnu og oddana (sjá mynd). Síðan er fest saman með llmi.
Listamannasamkeppnin
JÓLASVEINN
Klippið þennan litla jóla-
svein út úr pappa og málið
hann að mestu leyti rauðan, ])ó
eru skórnir svartir og beltið.
I>á er sett hómullarskegg á
hann með smá Iimdropa og
teiknuð augu og nef í andlitið.
Gjarna mætti setja lítil papp-
irsflögg í hendur hans.
Sá, sem stjórnar þessum leik,
þarf að hafa við höndina stóra
hvíta pappirsörk og blýant.
Hann klippir örkina i jafn
marga parta og þátttakendur
eru. — Á hvert blað teiknar
liann eitthvert einfalt. mynzt-
ur, t. d. hring, ferhyrning eða
sporöskju. — Síðan biður hann
þá alla að teikna nú eitthvað
á blaðið og hafá hringinn eða
ferhyrninginn fyrir uppistöðu
i myndinni. — Eftir svo sem
þrjár minútur safnar hann svo
saman blöðunum, og er þá oft
brosað að ýmsum þeim kynja-
myndum, sem myndazt hafa á
blöðunum lijá listamönnunum.
Svör af bls. 51
Borgirnar eru Paris, Berlín,
London, Oallas og Madrid.