Æskan - 01.04.1972, Síða 18
/*
Pési
ferðalangur
rinu slnni var strákur, státlnn og kátur. Hann
hét Pési og átti bróður, sem hét Drési. Drési
fór snemma tll fjarlægra landa og var því
kallaður Drési ferðalangur. Drési skrifaði Pésa
bróður sinum bréf og bað hann að koma og
heimsækja sig f Bala Hala, en sú borg er einhvers staðar
i Austurlöndum, þar sem piparinn grær. Eftir það var
Pésl lika kallaður Pésl ferðalangur.
Pési átti langa og stranga ferð fyrir höndum. Þess vegna
ætlaði hann að veiða nokkra fiska ( nestið. Hann tók með
sér öngul, stöng og línu og nóg nesti. Svo hrinti hann
bátnum sinum á flot. Báturinn hét Dísa.
Hátt uppi fyrir ofan höfuð Pésa var kria á flugi. Pési dorg-
aðl og dorgaði, en enginn fiskur beit á. Pési fór að hugsa
með sér, að þarna væri víst enginn fiskur. Hann varð
svangur og tók upp nestið sitt. En þegar hann var búinn
að stinga upp I sig fyrsta bitanum, heyrði hann rokna
skvampl
Hann leit við og sá þá ótal hringi á vatninu. „Þarna er
fiskur," hugsaði Pési og fór að dorga á nýjan leik. Þá kom
krian og tók allt nestið hans.
Nú beit heldur betur á hjá Pésa! Línan rann öll út-
byrðis. Og báturinn Dlsa fór af stað líka! Hjálp! Hvað bitur
á hjá Pésa? Pési var farlnn að halda, að það væri stærsti
fiskur heimsins. En þá slitnaði llnan.