Æskan - 01.04.1972, Blaðsíða 38
Fræg skip
Myndin, sem hér fylgir, sýnir Mayflower, skipið, sem
flutti pílagrímsfeðurna til Ameríku árið 1620.
Upprunalega lögðu pflagrímarnir af stað frá Southamp-
ton í ágústmánuði árið 1620, nokkrir með Mayflower, en
aðrir með skipinu Speedweli. Það kom hins vegar í Ijós,
að Speedwell reyndist ekki sjóhæft. Skipin sneru því bæði
við til Plymouth. i september 1620 lagði svo Mayflower eltt
af stað með alla pílagrímana um borð.
Mayflower var ,,brigantine“-skip með tvímastra þversegl-
um og mjög breitt um miðjuna. Það hefur sennilega verið
90 feta langt og um 180 tonn að stærð.
Það leikur nokkur vafi á því, hvort Mayflower hafi verið
smíðað sérstaklega fyrir pílagrímana eða ekki. Sumar
heimildir telja, að það hafi verið venjulegt verzlunarskip
þeirra tíma, en aðrar heimildir telja það hafa verið hval-
veiðiskip. Skipstjóri og eigandi Mayflower er talinn hafa
verið maður að nafni Christopher Jones.
Með skipinu voru rúmlega 100 pílagrímar, sem loks komu
að landi í Massachusetts í desember 1620, þar sem þeir
stofnuðu Plymouth nýlenduna.
mín. Þín vegna hef ég yfirgefið frumskóginn og villi-
mannslífið. Þín vegna hef ég íarið yfir álfur og höf. Með
mér verður þú hamingjusöm. Viltu verða konan mín?“
Nú fyrst skildi hún, hvað ást var. Það var hennar vegna,
sem hann hafði lagt allt það á sig, sem þurft hafði til þess
að valda þessari miklu breytingu á honum, — allt vegna
þess, hve mikið liann elskaði hana. Hún fól andlitið í
höndum sér. Hvað hafði hún gert? Af því að hún hafði
verið hrædd um, að hún stigi vitlaust spor með því að
láta að vilja þessa risa, hafði hún nú stigið annað spor
ennþá vitlausara. Hún sagði honum allt, sagði honum
sannleikann orði til orðs, án þess að draga neitt undan
eða leyna neinu.
„Hvað getum við gert?“ spurði hann. „Þú hefur játað,
að þú elskir mig. Þú veizt, að ég elska þig. Ég veit ekki,
livað siðalögmál þau, sem þið farið eftir, segja um þetta.
Ég læt jtig nú um að ráða fram úr, hvað bezt sé — hvað
helzt geri Jtig hamingjusama."
„Mér er ómögulegt að segja honum það, Tarzan,“
sagði hún. „Einnig hann er vænn maður og elskar mig.
Ég gæti aldrei horft á þig né neinn annan heiðvirðan
mann, ef ég sviki loforð mitt og heitorð við Clayton!
Ég verð að halda jrað, og jtú verður að hjálpa mér til
jjess að bera þá byrði, þó við þá ef til vill sjáumst aldrei
íramar eftir daginn í dag.“
Hitt fólkið var að koma inn, og Tarzan sneri sér út
að glugganum. Hann sá 'ekkert fyrir utan gluggann —
en eigi að síður sá hann fyrir hugskotssjónum sínum
græna grund með hitabeltisgróðri og grænum trjágrein-
um yfir. Á grundinni sátu ung stúlka og ungur maður.
Þau borðuðu ávexti og voru glöð og hamingjusöm. Og
þau voru ein.
Vökudraumsýn Tarzans truflaðist við Jrað, að póstmað-
ur kom inn og kallaði hátt, hvort nokkur jrar héti Tarzan.
„Hann er hér,“ sagði Tarzan.
„Hérna er símskeyti frá París, sent gegnum Baltimore.
Tarzan opnaði skeytið og las. Það var frá d’Arnot og
var á þessa leið:
„Fingraförin sanna, að þú ’ert sonur
Claytons og því réttborinn lávarður af
Greystoke. Óska til liamingju.
d’Arnot."
Þegar Tarzan var að ljúka við að lesa skeytið, kom
Clayton inn og rétti honum liöndina. Hér var kommn
maðurinn, sem bar titil Jsann, sem Tarzan átti með réttu
að bera. Maðurinn, sem sat með eignir Tarzans, maður-
inn, sem ætlaði að ganga að eiga stúlkuna, sem Tarzan
elskaði — og s’em elskaði Tarzan. Eitt einasta orð fr^
Tarzan mundi umbylta lífi þessa manns. Það mundi taka
af honum lávarðstignina, jarðeignirnar, hallirnar og "
og jafnlramt mundi Jane missa allt þetta.
„Ég hef ekki haft tækifæri til að Jrakka yður,“ sagð1
Clayton, „fyrir allt, sem þér hafið gert fyrir okkur.
er eins og það væri beinlínis starf yðar að frelsa líf okkar
bæði hér og í Afríku. Ég er því rnjög glaður, að þ1-’1
skylduð koma hingað, og mig langar til að kynnast yðu1
nánar. Ég hef oft hugsað um yður og hið einkennileg3
líf yðar sem villimaður í frumskógum Afríku. Og þótt það
komi mér ekki við, þá langar mig til Jress að spyrja yðuÞ
hvernig þér komuð til skógarins, eða réttara sagt, hvernig
stóð á veru yðar þar.“
„Ég er fæddur þar,“ svaraði Tarzan stillilega. „Móðú
mín var api og gat því ekki sagt mér mikið. En hver
faðir minn var, veit ég ekki."
36