Æskan - 01.04.1972, Blaðsíða 54
Jfclla drengi langar til að eignast
kappsiglingabáta. Vitanlega er
hægt að kaupa svona báta til-
búna i búðunum, en það er
miklu meira gaman að smíða þá sjálfur.
Þetta þarf ekki að vera nema lítill bátur,
sem hægt er að láta sigla á smátjörn, og
ef þið eruð margir drengirnir og eigið
hver sinn bátinn, þá getið þið haldið
kappsiglingamót.
Eg ráðlegg ykkur að gera skrokkinn úr
greniviðarbút og er hæfilegt, að hann sé
45 cm á lengd, 12,5 cm á breidd og 7 cm
á þykkt (sjá teikninguna). Þið sjáið á
teikningunni, hvernig þið eigið að tálga
trébútinn til þess að fá bátslögunina á
hann. Þið tálgið af kubbnum, þar sem ekki
er hvítt á teikningunni, með hníf eða
sporjárni og farið eftir málunum, sem
sýnd eru á myndunum. Loks sverfið þið
ailar ójöfnurnar af með raspi og núið
skrokkinn svo að lokum með sandpappir.
Og þegar það er búið, holið þið skrokk-
inn að innan, svo að byrðingurinn verði
ekki nema svo sem hálfur cm á þykkt,
nema að aftan, þar holið þið ekki öftustu
7 sentimetrana.
Til l>ess að skipinu hvolfi ekki, þegar
það kemur á vatnið, er nauðsynlegt að
hafa á því góðan kjöl, sem heizt ætti að
vera úr þunnri blýplötu (sjá X). Þið sjá-
ið á myndinni, hvernig hún er beygð sitt
á hvað að ofan og siðan er hún negld
neðan á skrokkinn eða skrúfuð með litlum
messingskrúfum, og er það betra. Að neð-
anverðu vindur þú brúnina á kilinum upp,
og þá er enn minni hætta á, að bátnum
livolfi.
Stýrið er gert úr þunnri fjöl og látið
ganga upp í gegnum litið gat, sem þú
borar gegnum afturstafninn fast fyrir
aftan kjöiinn, svo að stýrið falli alveg að
honum. Þú festir stýrið við kjölinn með
messinghring, svo að það fari ekki úr
skorðum.
Þilfarið er líka gert úr næfurþunnri
fjöl, og svo sem 15 cm frá stafninum gerir
þú ofurlitið gat á það fyrir mastrið, en i
botninn niður undan holunni festirðu
klossa, með holu fyrir mastursendann.
Svo negiir þú þilfarið ofan á bátinn með
smánöglum og þéttir allar rifur og holur
með kitti. Mastrið á að vera úr greni og
55 cm hátt; það er stutt með tveimur stög-
um hvorum megin, út i borðstokkinn, og
eru stögin fest í mastrið 20 cm fyrir neðan
masturstoppinn. Að neðan eru stögin
bundin í messinghringi, sem festir eru
i horðstokkana.
Þriðja stagið úr mastrinu gengur úr
toppi þess og í bugspjótið, en þaðan i
borðstokkinn að framan. Bóman er 35 cm
löng og gaffallinn 27 cm, og er messing-
hringur festur í gildari enda þeirra.
Svo að þú eigir ekki á hættu að skemma
segldúkinn þinn, býrðu þér fyrst til segl
úr pappír, og þegar þú hefur fundið, hvern-
ig það á að vera í lögun, sniður þú lérefts-
seglið eftir pappirssniðinu.
gaffalinn, en fest við mastrið með lausum
seglgarnslykkjum, sem geta runnið
mastrinu. Bómuendann festir þú n°e
snæri í keng, sem er bak við stýrið, sV°
að bóman fari ekki of iangt fram. FokkaU
er földuð utan um sterkt seglgarn og fest
fram í endann á bugspjótinu, en að aftau
er iiúri fest í messinghring á mastrinU
neðanverðu. Stýrissveifin er gerð úr sterk'
um stálvir og fyrir framan stýrið er stál'
virshringur, sem hægt er að festa stýr*s'
sveifina í, í þeim steilingum sem úska
er.
Svo er ekki annað eftir en að málfl
siglingabátinn og gefa honum fallegt nafn’
en það gcrir ]>ú eftir eigin vild.
Kappsiglingabátur
52