Æskan - 01.04.1972, Qupperneq 57
HE/M/LISBÓK ÆSKUNNAR
f---------------------
7. Látið spaghettið í skál eða
eldfast mót og hellið allri
blöndunni á pönnunni yfir
í mótið. Blandið litillega
saman.
8. Borið fram í skálinni eða
eldfasta mótinu og borðað
af djúpum diski með skeið
og gaffli. Haldið á skeiðinni
í vinstri hendi, gaffli i
þeirri hægri, og spaghettið
vafið upp á gaffalinn um
leið og stutt er á með skeið-
arblaðinu.
Ath.: Gott er að rífa ost yfir
mótið og hafa það í heitum
ofni í 7—10 min.
Steikt lifur m/beikoni
800 g lifur (2 lifrar)
6 msk. hveiti
2 tsk. salt
% tsk. pipar
200 g beikon
3-4 laukar
1. Þvoið, þerrið og skerið lifr-
ina i þunnar sneiðar.
2. Blandið saman hveiti og
kryddi, skerið beikonið í
bita og laukinn i sneiðar.
3. Hitið pönnu með beikons-
bitunum, þannig rennur fit-
an af beikoninu.
4. Veltið lifrarsneiðunum úr
hveitiblöndunni og brúnið i
beikonfeitinni í 2-3 min. á
hvorri hlið við vægan hita.
5. Brúnið laukinn i sömu feit-
inni og raðið yfir lifrina á
fatinu.
6. Berið hrærðar kartöflur og
hrátt salat með lifrinni.
Steikt lifur m/sósu
3-4 laukar
100 g smjörliki
800 g lifur (lamba-, kinda-
eða nauta)
5 msk. hveiti
2 tsk. salt
Yi tsk. pipar
6 dl vatn
2 dl mjólk
1. Hreinsið lauk og lifur.
2. Skerið laukinn í sneiðar,
brúnið á pönnu í helmingn-
um af smjörlíkinu og látið
á disk.
3. Skerið lifrina i þunnar
sneiðar, veltið þeim úr
hveitiblöndunni og brúnið
þær i því, sem eftir er af
smjörlikinu.
4. Hellið vatni á pönnuna og
sjóðið lifrina i 5 mín.
5. Hristið saman mjólkina og
afganginn af hveitiblönd-
unni, hrærið jafninginn út
á pönnuna og látið suðuna
koma upp aftur. Litið sós-
una, ef með þarf.
Ath.: Gætið þess að brenna
ekki lifrina. Steikið lifrina við
vægan hita, og ef þröngt er á
pönnunni, geymið þá brúnuðu
sneiðarnar á diski á meðan
lokið er við að steikja. Ef lifr-
in er of mikið soðin, verður
hún hörð og þurr.
VJl
r
ÞÓRUNN PÁLSDÓTTIR
HEIMILISBÓK
ÆSKUNNAR
Svör til „Kokksins
Framhald
rr
Tómatsúpa
1 1 vatn
6—7 stk. makkarónur
l%-2 msk. kjötkraftur
2 msk. hveiti
1 dl mjólk
%—1 dl tómatsósa
Salt og pipar
Vatnið er hitað í suðu,
makkarónurnar brotnar niður
smátt og soðnar í 10 minútur.
Hveiti og mjólk er hrist sam-
an, jafningnum hrært út í
ásamt tómatsósu og kjötkrafti.
Kryddað eftir smekk, súpan
soðin 5—10 mín. Það bætir
súpuna mikið að láta 1—2 msk.
af rjóma í hana.
Steiktar kjötræmur
m/tómat
1 kg nauta-, hrossa- eða
kindakjöt (vöðvi)
100 g smjörlíki
4 tsk. salt
% tsk. pipar
2 laukar
6 msk. tómatkraftur
2 dl vatn
2 msk. sitrónusafi
2 dl rjómi
1 dl niðursoðnir sveppir
1. Skerið kjötið í 3 cm langar
og 1 cm þykkar ræmur.
2. Hreinsið laukinn og brytjið
niður.
3. Látið smjörlikið á pönnu og
brúnið kjöt og lauk i þvi,
þegar það er vel heitt.