Æskan - 01.09.1975, Blaðsíða 21
abral fæddist í Belmonte í Portúgal árið 1467
eða 1468 og lést sennilega 1520.
Þegar Vasco da Gama hafði fundið sjóleiðina til
Indlands þurftu Portúgalir að tryggja þessa ómetan-
legu verslunarleið. Portúgalsstjórn ákvað að senda
flota með þrettán skipum og 1200 mönnum til að
stofna verslunarstaði. Einnig hugsuðu Portúgalir sér
að kristna múhameðstrúarmenn og Indverja. Það var
því ákveðið, að á flotanum væru nokkrir prestar og
munkar, svo hægt væri að fræða og skíra væntan-
lega trúskiptinga.
Vasco da Gama var boðin stjórn leiðangursins, en
hann gat ekki né vildi taka stjórnina að sér.
Pedro Alvares Cabral var því útnefndur flotafor-
Ingi þann. 9. mars í Lissabon árið 1500 og stjórnaði
hann ferðinni.
Með Cabral fór heimsfrægur landkönnuður og sjó-
maður, Bartholomeo Diaz, og var hann skipherra á
einu skipinu. Leiðangurinn var vel útbúinn að öllu
leyti og tók Cabral með sér miklar og dýrar gjafir
til að gefa furstanum yfir Kalkútta á Indlandi.
Flotinn lagði nú af stað en villtist og komst til
Brasilíu, og var landið nefnt Terra de Brazil. Brazil
er tré, sem sterkt litarefni er unnið úr og er það mjög
dýrmætt. Þannig fékk landið nafn af þessu litunar-
tré.
Cabral dvaldi tíu daga þarna í Vesturheimi. Hann
var á stað, sem hann hélt að væri eyja og kallaði
Hsa da Vera Cruz. Cabral helgaði allt landið kon-
ungi Portúgala.
Þessir landkönnuðir á miðöldum tóku öll lönd til
eignar fyrir konunga sína og alveg eins, þótt þeir
vissu að löndin væru albyggð. Þetta þótti flestum rétt
á miðöldum og páfinn lagði blessun sína yfir þetta
fyrirfram.
Cabral lagði svo í haf með flota sinn áleiðis til
Indlands. Hann hreppti mikla storma og nokkur skip
hans fórust með allri áhöfn og þar á meðal skip
Bartholomeos Diazar.
Cabral lauk ferð sinni og hlóð skip sín kryddi í
Indlandi. Kryddið var svo dýrt, þegar heim kom til
Evrópu, að einn skipsfarmur borgaði alla ferðina.
Cabral komst heim með sex skip og voru það ærin
auðæfi. Menn þessir lögðu mikið á sig, og oft kom
ekki aftur nema helmingur þeirra, sem af stað fóru,
og stundum örfáir menn. Flestir þessara manna fóru
til að eignast auðæfi og margir gátu lifað eins og
kóngar eftir vel heppnaða ferð. Það þótti ekki eftir-
sóknarvert að temja sér iðni, nýtni og sparsemi, held-
ur var lofsvert að afla mikils og eyða miklu.
Cabral varð ekki heimsfrægur fyrir að fara versl-
unarferð til Indlands, heldur varð hann heimsfrægur
fyrir að villast og finna Brasilíu. Fyrir það fékk hann
aðalstign og hét upp frá því Don Pedro Alvares Ca-
bral.
Eftir þessa ferð eignuðust Portúgalir Brasilíu og
portúgalska er töluð þar enn I dag.
ÞorvarSur Magnússon.
Nútlminn meS tækni sina og
hraSa hvetur alla hugsandi menn
hl bindindis á áfenga drykki.
Dr. G. Brandes.
*
Áfengið
Heili manns, sem neytir áfengis,
getur aldrei veriS vökull og örugg-
ur.
Henry Ford.
*
19