Æskan - 01.09.1975, Blaðsíða 26
Sxfellt fjölgar ökutaekjunum hér á landi. Fyrir
um það bil fjörutíu árum voru engar bifreiðar hér.
1 dag eru þær um 40 þús. og þeim fjölgar jafnt og
þétt. Vissulega er ánægjulegt að sem flestir geti
eignast ökutæki, en það verða alltaf einhverjir
gangandi og þeim mega ökumennirnir ekki gleyma.
Þessi mikla aukning ökutækja, krefst aukinnar
aðgæzlu gangandi vegfarenda. Þeir hafa götuna
ekki lengur einir. Xnæsta ári verður skipt úr
vinstri umferð yfir í hægri umferð og fyrir
þann tima verða gangandi vegfarendur að gera
sér glögga grein fyrir þeim umferðarreglum, sem
þeim ber að fara eftir, Til að geta mætt þeim
breytingum, sem verða við skiptin, er fyrst og
framst nauðsynlegt að þekkja hinar almennu
umferðarreglur.
Þegar við þurfum að fara yfir akbraut, verðum
við að nota gangbrautir, þar sem þær eru fyrir
hendi, að öðrum kosti skulum við ganga þvert
yfir akbrautina, alls ekki á ská, því að það
bæði lengir leiðina yfir og við eigum erfiðara
með að sjá til ferða ökutækja. Við verðum
ávallt að líta vel í kring um okkur, áður en
farið er út ó akbrautina, jafnvel þótt við
sáum ó merktri gangbraut, það er engin vissa
fyrir því, að ökumaður sjái til okkar, eða að
hann virði skylduna að víkja fyrir gangandi
vegfaranda ó leið yfir akbraut.
Þótt ökumaður stöðvi, er við erum ó leið yfir
akbraut, verðum við þrátt fyrir það að vera
mjög varkár, því að við getum átt ó hættu, að
annar ök.umaður aki framhjá hinu kyrrstæða öku-
tæki, eða að ökumaður fró vinstri stöðvi ekki.
i/0 /púfc. bitqr
Við verðum að gera okkur ljóst, að akbrautin er
fyrir akandi umferð, en gangstéttir eða gang-
vegir meðfram akbrautum, fyrir hina gangandi.
C
ó
Við skulum ætíð gera okkur fulla grein fyrir
því fyrirfram, hvert við ætlum að fara og
velja síðan öruggustu leiðina þangað. Gang-
stéttin - gangbrautin - gangstéttin.
Það er þess virði að velja aðeins lengri
lej ð, ef hún er öruggari.
24