Æskan - 01.09.1975, Blaðsíða 34
FYRSTU ARIN
NÝJASTA ÚTGÁFAN
Flestir hafa örugglega heyrt þeirra getið áður, og
þá helst í sambandi við Eurovision söngvakeppnina
1972, þar sem þeir hötnuðu í fyrsta sæti.
Síðan þá hefur lítið heyrst frá þeim, þar til nú
nýlega að þeir gáfu út plötu er ber nafnið „Once
upon a star“. Sigldi sú plata hraðbyri upp á topp-
inn og náði fyrsta sæti eftir nokkrar vikur frá út-
gáfu hennar. Þeir félagar í B. C. R. hafa nýlokið
hljómleikaferðalagi um gjörvallt Bretland, en löngu
áður en hljómleikaferðalagið byrjaði höfðu allir mið-
ar selst upp. B. C. R. er líkt við Bítlana hvað vin-
sældir þeirra og lætin á hljómleikum þeirra snertir.
Aðdáendurnir féllu í yfirlið hver á fætur öðrum,
sérstaklega stelpurnar, er B. C. R. komu fram á svið-
ið og hófu leik sinn. Sagt er að aldur aðdáenda
þeirra nái allt niður í 9—10 ára. Nú bíða menn bara
spenntir eftir því hvernig B. C. R. verður tekið í
Bandaríkjunum, það er nefnilega stóra spurningin
hvort þeir ná jafn miklum vinsældum vestan hafs
og í Bretlandi. En þeir munu væntanlega fara þang*
að einhvern tíma í sumar.
LEO SAYER
Leo Sayer er breytilegur maður, í raun og veru
var hann fyrstur til að viðurkenna það. Hann hefur
orðið fyrir nokkrum breytingum á leið sinni á topp-
inn, t. d. trúðurinn með hvíta andlitið, nett ástar'
skáld í Gatsby-stíl og nú aðeins venjulegur piltur
í fallegum jakka og gallabuxum.
Nú er Leo að reyna að koma undir sig fótunum.
hverfa frá glitrinu og fígúruhættinum. Hann hefur
stofnað nýja hljómsveit sem mun verða honum ^
aðstoðar og getur væntanlega framfylgt áformum
32