Æskan - 01.09.1975, Blaðsíða 36
að lá ekki vel á Lilla. Hann
var hálf önugur, þegar hann
veitti því athygli, að Nonni bróðir
hans, sem var þrem árum aldri, og
var því orðinn 12 ára gamall, lædd-
ist hljóðlega út um aðaldyrnar.
Nonni var að fara I búðir með það
fyrir augum að kaupa gjöf handa
mömmu og pabba, en þau áttu 14
ára brúðkaupsafmæli þennan dag.
Fyrir tveim mánuðum hafði Nonni
trúað Lilla fyrir leyndarmálinu, sem
var það, að hann hefði ásett sér að
aura saman fyrir gjöf handa for-
eldrunum.
Lilla fannst þetta vera stórsnjöll
hugmynd og ásetti sér að gera það
sama. En hvað skeði? Hann hafði
safnað saman 4,70 fyrstu vikuna,
aðra vikuna eignaðist hann 3,50,
þriðju vikuna aðrar 3,50. Fjórðu
vikuna var hann boðinn í afmæli, og
auðvitað varð hann að kaupa gjöf.
Það voru 4 vikur til stefnu, svo
Lilla fannst, að hann hefði nægan
tíma.
Svo leið tíminn og tvær vikur
voru eftir til að safna í sjóðinn. En
þá komu dag nokkurn svo Ijóm-
andi sniðugar baunabyssur I búðar-
glugganum á „horninu," og allir
strákarnir i götunni keyptu sér
byssu, og þá gat Lilli ekki skorist
úr leik og keypti líka byssu.
Allt í einu var afmælisdagurinn
kominn, og Nonni var farinn í bæ-
inn að kaupa fallega gjöf handa
bestu mömmunni og besta pabb-
anum í heimi. Lilli átti nákvæmlega
1,70 og hvað heldur þú að hægt
sé að kaupa fyrir 1,70?
„Kort,“ sagði hann við sjálfan
sig. „Blómakort með gylltri rönd,
það getur þú keypt, Lilli sæll.“ En
hvað hefði eitt vesælt kort að segja
á móti fínni gjöf frá Nonna? Ekki
myndi það standast samanburð.
Hann gat ekki látið vera að hugsa
um baunabyssuna, sem hafði eyði-
lagst daginn eftir að hann keypti
hana. Mikið gat hann verið vitlaus.
Hann settist á bakdyratröppurnar og
fór að hugsa um, hvað Nonni myndi
nú kaupa. Honum lá við gráti, en
í sömu andránni heyrði hann í
bílnum og vissi, að það var mamma
Hann hljóp út að hliðinu og hélt
því opnu. Mamma hans stöðvaði
bilinn við bílskúrinn.
Gjafakortin
„Komdu og hjálpaðu mér, Lilli
minn,“ sagði hún. „Bíllinn er svo
óhreinn, og ég er að koma með föt
úr hreinsun, svo ég er hrædd um
að óhreinka fötin, ef þau koma við
bílinn, þegar ég tek þau út.“
Lilli flýtti sér að bílnum og hélt
opinni hurðinni á meðan hún tók
fötin út, síðan hljóp hann upp
tröppurnar og opnaði útidyrahurð-
ina.
„Æ-i, vinur minn,“ sagði mamma
um leið og hún gekk fram hjá eld-
húsinu, „allur uppþvotturinn eftir,
og ég sem hef svo mikið að gera.“
Lilli gaut augum í skyndi að diska-
hrúgunni um leið og hann snarað-
ist út til þess að loka bílnum. Það
var vissulega rétt, sem mamma
sagði, bíliinn var afskaplega ó-
hreinn. Það var örugglega langur
tími liðinn síðan hann hafði verið
Sænska söngstjarnan I n g e I a
B r a n d e r heimsótti (sland fyrir
nokkrum árum. Það skemmtileg-
asta, sem hún upplifði á íslandi,
var að koma á hestbak. Nú hefur
Ingela Brander keypt sér íbúð [
Sviss, o^ mun syngja þar í iandi
og á (talíu.
þveginn og bónaður. Pabbi hafði
alltaf svo mikið að gera. Ekki hafði
hann tíma tii að þvo bílinn.
„En — ef. En — ef.“ Lilli hljóp
inn og leit á klukkuna, hana vant-
aði tíu mínútur ! fimm. Hann varð
að flýta sér. í búðinni á horninu
keypti Lilii kort með bláum fuglum
og gylltri rönd ásamt áletrun: Ástar-
kveðja til mömmu og pabba a
hátíðisdegi þeirra. — Þetta var nú
ekki mikið, en það var einmitt það,
sem hann þurfti að fá. Þegar móðir
hans kallaði á hann til að borða
klukkustund síðar, sá hann hvar
Nonni, sæll á svip, lét pakkann með
gjöfinni til mömmu og pabba á
borðið. Pabbi tók bréfið utan af
pakkanum, en Lilli og Nonni horfðu
á hann með eftirvæntingu í svipnum-
Gjöfin reyndist vera litil skál 'úr
hnotuviði, Ijómandi falleg. Mamma
og pabbi urðu mjög glöð, og bæði
þökkuðu þau Nonna fyrir valið á
gjöfinni, og hældu honum fýrjr
smekkvísi. Lilli tók kortið upp úr
vasa sínum, og rétti mömmu sinni
það. Foreldrarnir voru mjög alvar-
leg á svipinn, þegar mamma opn-
aði umslagið. Vissulega var þetta
engin gjöf, en þau létu ekki á Þv'
bera. En í umslaginu voru, fyrir ut-
an kortið, tveir hvítir miðar, og var
skrifað á annan: „Mamma," en á
hinn: „Pabbi.“ Mamma las upphátt.
það sem á miðana var skrifað:
„Ábyrgur fyrir viku-uppþvotti í eid*
húsinu. Lilli.“ Pabbi las: „Tek að
mér að sjá um þvott og bónun á
bílnum. Lilli.“
„En dásamlegt," sagði mamma-
„Get ég byrjað að njóta gjafarinnar
í dag?“
„Auðvitað," sagði Lilli brosandi.
„ég ætla að taka bílinn í gegn á
laugardaginn."
Klukkustundu síðar, þegar LiHj
var að Ijúka uppþvottinum, brosti
hann með sjálfum sér, þegar honum
varð litið á foreldrana, þar sem ÞaU
sátu svo ánægð og glöð og nutu
þess að horfa á sjónvarpið. Mamma
virðist vera ánægð að sleppa við
uppþvottinn, hugsaði Lilli hamingju'
samur. Ef til vill var gjöfin hans
skrítin, en honum virtist þó, að for'
eldrarnir kynnu að meta hana oQ
jafnvel taka hana fram yfir eitthvað
annað.
Hrefna Tynes þýddi■
34