Æskan - 01.09.1975, Page 43
Vi5 tökum tekkbút, stærð: 20
sentimetrar, breidd 6,5 cm og þykkt
3 cm. — Á sléttan (heflaðan) hlið-
arflötinn teiknum við myndina af
trönunni, ofurlítið stærri en mynd-
ir>a, sem hér sést. Ljósa nefið teikn-
uni við þó ekki á tekkbútinn, því að
Það er smíðað sér úr Ijósara efni,
ramín eða birki. Síðan þurfum við
helst að fá trönuna sagaða út í
ðandsög, þó einnig megi nota
sPorjárn, raspa og bakkasagir og
^aufsög. En fljótlegast er að fá út-
Knurnar sagaðar út í bandsög, t. d.
á einhverju trésmíðaverkstæði eða
Þá í smíðastofu skólanna.
Þegar útlínur hafa verið sagaðar
át, þarf að „forma“ fuglana með
Því að raspa og síðan sverfa þá til,
Þannig að form fuglsins verði sem
náttúrulegast. Eins og áður er sagt,
Þarf að smíða nefið, hið langa og
sívala, og á þeim enda þess, sem
veit að höfðinu, er hafður lítill tappi,
(3 mm). Hann mætti vera svo sem
1 cm á lengd, og svo þarf að bora
aieð 3 mm járnbor inn í hausinn,
t>ar sem nefið á að límast á. Tapp-
anum, vel límbornum, er stungið
'nn í gatið, þrýst vel inn, og síðan
'átinn þorna yfir eina nótt a. m. k.
Þegar fuglinn er fullfrágenginn,
er hann nuddaður með tusku,
vættri í tekkolíu.
41