Æskan - 01.09.1975, Blaðsíða 46
— Nú ‘áttu að fara að sofa, Sigga
mín, sagði mamma við Siggu. —
En fyrst þarftu að taka leikföngin
þín upp af gólfinu og láta hvern
hlut á sinn stað.
Sigga var í óða önn að líma
myndir inn í bók, og þegar hún var
búin að því, flýtti hún sér að þvo
sér og hátta. Hún steingleymdi að
hátta dúkkuna sína og leggja hana
í rúmið, og hún gleymdi Ifka að
ganga frá hinum leikföngunum.
Þau lágu í hirðuleysi á gólfinu,
meðan Sigga svaf vært í rúminu
sínu. Litla dúkkulísan, hún Bíbí, lá
allsber á gólfinu og henni var ís-
kalt.
Þegar mamma leit inn til Siggu
seinna um kvöldið, sá hún Bíbí
liggja þarna kalda á gólfinu og hin
leikföngin út um allt. Mömmu þótti
ósköp leiðinlegt að sjá að Sigga
hafði óhlýðnast henni. Þess vegna
tók hún Bíbí upp af gólfinu, klæddi
hana í föt og lét hana svo inn í
skáp, því hún ætlaði ekki að leyfa
Siggu að leika sér að henni fyrst um
sinn.
Siggu leið illa í svefninum næsta
morgun; hún bylti sér á allar hliðar
og henni var allt of heitt. Allt f einu
heyrði hún þrusk við gluggann.
Hún settist upp f rúminu og sá nú,
að Bíbí sat þarna og hélt utan um
hálsinn á litla tuskuhundinum, hon-
um Snata, og var hágrátandi. Sigga
var alveg hissa að sjá Snata, þvf
hún hafði týnt honum úti f garði
fyrir mörgum dögum. Sigga heyrði
að Snati sagði við Bíbí:
— Hættu að gráta og komdu
með mér, nú á ég heima hjá lítilli
telpu, sem heitir Dóra, og hún
hugsar svo vel um leikföngin sín.
— Æ, mér er svo kalt, hún Sigga
gleymdi að láta mig í rúmið í gær-
kvöldi, sagði Bíbí.
— Sestu á bakið á mér, ég skal
hlaupa með þig til hennar Dóru,
hún verður áreiðanlega góð við þig,
sagði Snati.
Bíbí settist á bak Snata og hann
hoppaði fyrst upp á stól, og þaðan
út um gluggann.
— Mamma, mamma, Snati oð
Bíbí eru farin, hrópaði Sigga °9
glaðvaknaði um leið. Hún hljóp
fram úr rúminu og leit út um glugð'
ann, en sá hvergi Snata og Bíbí-
Svo leitaði hún á gólfinu, en þau
voru heldur ekki þar.
Nú kom mamma inn, og S\QQa
sagði henni að bæði Snati og Bíbí
væru horfin.
— Það er ekki von að þau viljj
vera hjá þér, þegar þú hirðir ekki
um þau, sagði mamma. —
skaltu framvegis láta öll leikföngin
þín á sinn stað, áður en þú ferS
að hátta á kvöldin, kannski koma
þau þá aftur, Snati og Bíbf.
' Þetta gerði Sigga. Á hverju kvöldi
í heila viku tók hún alltaf saman
leikföngin, áður en hún fór að sofa-
Þegar hún vaknaði á sunnudags-
morguninn lá Bíbí á koddanum hjá
henni. Þið getið ímyndað ykkur að
þá varð Sigga glöð. Og ennþá gla®'
ari varð hún, þegar Dóra kom
seinna um daginn og færði henm
Snata heilan á húfi. Hún hafði fund'
ið hann úti í garðinum.
Nú var Sigga litla búin að f®
báða vini sína aftur. Og upp fra
þessu hugsaði hún alltaf vel urT1
leikföngin sín.
Einu sinni fyrir langa löngu, löngu
áður en Viktoría drottning kom til ríkis
f þessu landi — það er Jamaica — var
ANANSI. Stundum var Anansi könguló
og stundum var hann maður. Einu
sinni sat Anansi brosandi fyrir framan
húsið sitt og strauk á sér magann.
Þá kom herra Héri framhjá. Þegar þetta
gerðist var herra Héri með fallegt, langt
skott og tvö löng og faileg eyru, alveg
eins og hann hefur nú á dögum.
Herra Héri bauð Anansi góðan dag-
inn, og Anansi tók undir kveðju hans.
„Af hverju brosirðu svona breitt og
strýkur á þér magann, Anansi bróðir?"
spurði herra Héri.
„Ég var að borða svo Ijúffengan fisk,
bróðir Héri,“ sagði Anansi. „Ó, hvað
fiskurinn bragðaðist vel.“
„Áttu nokkuð eftir, Anansl bróðir?
Gefðu mér að smakka."
En Anansi er þannig gerður, að hann
gefur engum neitt. Ekki einu sinni svelt-
andi konu sinni og börnum.
Anansi þykist vera lelður og segist
ekki einu sinni eiga eftir ugga eða
sporð eða jafnvel bara eitt bein, svo
hann geti því miður ekki leyft herra
Héra að bragða á fiskinum. Svo seg,r
hann:
„En heyrðu snöggvast, Héri bróð|r-
Með þessu fallega skotti þínu geturða
auðveldlega veitt fisk sjálfur. Ef Ó9
sýni þér hvernig þú átt að fara að Þvl
að veiða fiskinn, ætlarðu þá að 9efa
mér helminginn af því, sem þú veiðir?
Herra Héri samþykkir þetta.
Svo segir Anansi honum, að hana
þurfi bara að dýfa skottinu f rorarn’
setja það niður í vatnið og þá geti hana
dregið fisk.
Þetta gerir svo herra Héri, og fýr®
fiskurinn sem kemur er stór og f11'*1
Sá fiskur fékk sér bara einn bita.
Þess vegna hefur hérinn stutt sko
enn þann dag í dag.
44