Æskan - 01.04.1976, Page 50
Ég var einu sinni 99 m há, bol-
urinn 27,5 m að ummáli og 60 m
upp að greinum. Þegar ég óx úr
grasi í Kaliforníu, átti land mitt eft-
ir að bíða 942 ár eftir Kólumbusi.
Þetta var árið 550.
Svo stendur skrifað á risafuru-
viðarsneið í Náttúrugripasafninu í
New York. — Margar risafurur
verða yfir 100 m hæð og eru allra
trjáa gildvaxnastar.
Hin hæsta, sem mæld hefur verið:
„Faðir skógarins", varð 135 m á
hæð eða 100 m hærri en Landa-
kotskirkja í Reykjavík. Sú gildasta
mældist 46 m að ummáli bols og
14,5 m í þvermál. Berið þetta sam-
an við ibúðarherbergi eða skóla-
stofu. Á fjórða þúsund árhringir
hafa verið taldir í felldum bol. Vind-
urinn hefur þotið í limi þess trés,
þegar Odysseifur sigldi og Faraó-
arnir voru að láta byggja pýramíd-'
ana ( Egyptalandi. Það hefur lifað
alla íslands byggð! Margar núlif-
andi risafurur hafa vaxið upp af
fræi á Krists dögum.
Gerð hafa verið göng gegnum
bol risafuru, svo víð að bflar aka
( gegn. 8 menn geta gengið sam-
hliða á felldum bol risafuru! Dans-
gólf var gert úr þversneið risafuru-
bols, og komust þar fyrir 16 pör. Á
heimssýningunni í Bruxelles 1958
var sýnd 9 m breið þversneið úr
bol risafuru; þyngdin var 11 tonn.
Fyrir tugmilljónum ára hafa
margar risafurutegundir myndað
mikla skóga bæði í Norður-Amer-
íku, Evrópu og víðar. Það sýna leif-
ar í jarðlögum. Nú eru aðeins 3
tegundir eftir, þ. e. rauðtré (red-
INGÓLFUR DAVÍÐSSON:
Tré eldri en
Islandsbyggð
wood), mammúttré og vatnsgreni.
Vaxa tvö hin fyrstnefndu í vestan-
verðum Bandaríkjunum, þar sem
raki hafvinda nær til, en vatnsgren-
ið í Kína, öll á takmörkuðum svæð-
um. Rauðviður þykir mjög góður til
smíða, og sveppir, skordýr og eld-
ur vinna lítt á honum. Börkurinn er
mjög þykkur og hlífir gegn skógar-
eldum. Ýmis risafurusvæði eru frið-
uð. Indíánar höfðu vitanlega lengi
þekkt risafurur, en kaþólskur prest-
ur sá þær fyrstur hvítra manna ár-
ið 1769.
Vatnsgreni var þekkt sem stein-
gervingur, en talið útdautt fyrir
milljónum ára. En um 1940 fann
kínverskur prófessor tréð snarlif-
andi í „Tígurdalnum" í Kína. Eftir
stríðið voru stór svæði þarna rann-
sökuð, og fann bandarskur leið-
angur um 1000 tré á 800 ferkíló-
metra svæði 1947—1949. Fundur
trésins þótti heimsfrétt. Tígurdalur-
inn var gerður að ktnverskum þjóð-
garði, og grasgarðar um allan heim
kepptust við að ná ( fræ. Eru nú
vatnsgreni víða í uppvexti, og hafa
fáein eintök jafnvel verið gróðursett
á íslandi, en líklega er hér of kalt
fyrir það. Rauðtré og mammúttré
þrífast vel víða í vestanverðri Ev-
rópu, t. d. í Englandi og I Dan-
mörku. Ungplönturnar eru þó mjög
viðkvæmar.
Til er tré, broddfura að nafni,
sem ef til vill verður enn eldri en
risafurur, en er miklu minni. All-
margar broddfurur eru f uppvexti á
(slandi og virðast þrífast vel, t. d.
í Hallormsstaðaskógi.
Sveina litla hafði fengið að fara
í dansskóla og mamma fór þangað
með henni í hvert skipti til þess að
horfa á. Einu sinni sagði hún Sveinu
að það þætti ekki kurteisi að dansa
þegjandi, eins og hún gerði. Hun
yrði að venja sig á það að tala vi®
dansnaut sinn. í næsta skipti tók
mamma eftir því að sami drenguf'
inn kom og bauð Sveinu í dans í
hvert skipti og dansað var. Hún tók
líka eftir því sér til ánægju, að nu
var Sveina farin að tala í dansinum-
Þegar þær komu heim spurð'
mamma:
— Hvernig stóð á því að sami
drengurinn dansaði alltaf við Þ'9 ■
— Það er af því, að ég er að
segja honum framhaldssögu.
Billy Sunday, hinn frægi kenni-
maður, kom einu sinni til borgan
þar sem hann var ókunnugur. "
Þegar hann steig út úr járnbrautar-
lestinni þreifaði hann í vasa sinn
og fann þar bréf, sem hann hafð'
gleymt að setja [ póst. — Hann
kallaði [ lítinn dreng, sem var Þar
nærri og sagði:
— Heyrðu góði minn, geturðu
sagt mér hvar pósthúsið er?
— Auðvitað, sagði strákur °g
benti honum hvaða leið hann setti
að fara.
Biily þakkaði honum fyrir °9
spurði svo:
— Veistu hver ég er?
Nei, það vissi strákur ekki.
— Ég er Billy Sunday og á að
prédika hér í kvöld. Komdu til kii'kJ'
unnar og þá skal ég vfsa þér leið'
ina til himna.
— Þú ert ekki líklegur til þasS’
sagði strákur, þú, sem ekki einu
sinni ratar á pósthúsið!
Barnahjal
48