Æskan - 01.01.1982, Page 18
Láki og Gosi.
Kisa og refurinn.
I ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Gosi og Kisa.
Þann 30. desember sl. frumsýndi Þjóðleikhúsið
leikgerð Brynju Benediktsdóttur, upp úr ævintýra-
sögu ítalska rithöfundarins Carlos Collodi um
auðtrúa spýtustrákinn Gosa, sem langaði svo til að
verða venjulegur drengur. Brynja Benediktsdóttir
er leikstjóri. Leikmynd og búninga hefur Birgir
Engilberts leikmyndateiknari gert. Söngur og dans
eru stór hluti sýningarinnar, texta samdi Þórarinn
Eldjárn, tónlist er eftir Sigurð Rúnar Jónsson og
dansana hefur Ingibjörg Björnsdóttir samið og
æft.
Margir frægir leikarar úr fyrri barnaleiksýning-
um Þjóðleikshússins á undanförnum árum koma
fram í leiknum. Má þar til nefna Árna Tryggvason,
sem leikur nú Láka gamla leikfangasmið, Árna
Blandon, sem leikur sjálfan Gosa spýtustrák, Sig-
urð Sigurjónsson, sem kemur fram í gervi Flökku-
jóa, Margréti Ákadóttur sem leikur Huldu, Önnu
18