Æskan - 01.01.1982, Blaðsíða 34
SKÓLABÖRN SVARA
Svör skólabarna í prófum geta oft
verið mjög hugmyndarík og sniðug.
Hér á eftir fara nokkur dæmi um það:
Hvaða merkur útlendingur gekk í lið
með Bandaríkjamönnum í frelsis-
stríðinu?
— Guð.
í hvaða röð eru guðspjöllin?
— Hvert á eftir öðru.
Hvaða skepna verður hændust aó
manninum?
— Konan.
Hvaða þjóð byggir Pódalinn?
— Pódælingar.
Fólkið sem bjó í Egyptalandi í forn-
öld er kallað múmíur.
Sá er helsti munur á lofti og vatni,
að hægt er að auka raka í lofti, en ekki
í vatni.
Kettir eru ferfætlingar og venjulega
eru fæturnir sinn í hverju horni líkam-
ans.
Maginn í flestum dýrum er rétt
sunnan við rifin.
Maðurinn er eina dýrið sem kann
að kveikja Ijós og ekkert annað dýr
kann heldur að snýta sér.
Guð lét syndaflóðið koma af því að
mennirnir voru svo óhreinir.
Maðurinn er dýr sem klofið er upp
að miðju og gengur á klofna endan-
um.
Hænur eru fallegir fuglar. Þær eru
búnar þannig til að aðrar hænur liggja
á eggjum og unga þeim út.
Besta ráðið til að stöðva blóðrás úr
fæti er að vefja fætinum utan um lík-
amann, rétt fyrir ofan hjartað.
Prestur var að hlýða börnurrTýfir
kafla úr biblíusögunum sem þau
höfðu átt að læra utanbókar. Kaflinn
byrjaði svona:
— Það boð gekk út frá keisaranurr
Ágústusi að allur heimurinn skyldi
skattskrifast.
Einn drengurinn, sem var nokkuð
gjarn á að lesa skakkt, þuldi þetta
þannig:
— Það roð hékk út úr keisaranum í
öskustó, að allur heimurinn skyldi
gatrífast.
Gagnsær hlutur er eitthvað sem
hægt er að horfa í gegnum, t. d. skrá-
argat.
Beinagrind er maður sem vantar á
bæði húð og hár.
Vinstra lungað í manninum er dálft-
ið minna en hægra lungað af því að
sálin er rétt hjá því.
Og nú fór Chan að brjóta heilann
um, hvar hægt væri að fela tryggða-
tröllið hann Motsi. Og börnin gældu
við Motsi og gæddu honum á sæl-
gæti, því að þau vissu ekki, hve lengi
þeim mundi haldast á honum.
Daginn eftir var Motsi horfinn. Chan
sagðist hafa falið hann og hann
sagðist vona, að felustaðurinn væri
svo öruggur, að hermennirnir fyndu
hann ekki.
— En nú verðið þið að eiga frí fyrst
um sinn, börn! sagði skólastjórinn. —
Lofið mér því, að vera góð og þæg —
þá eigum við eftir að lifa farsæla daga
eins og áður!
Skömmu síðar kom heil fylking
hermanna skálmandi og nam staðar
við skólann.
— Keisaranum hefur borist til
eyrna, að hér sé til góður dreki í
þorpinu, sagði foringinn. — Hvar er
hann? Við eigum að sækja hann.
— Dreki! tautaði gamli Chan. —
Já, það er víst um það. Ég veit svei
mérekki, hvarhann getur verið, en nú
skulum við svipast um eftir honum.
Foringi hermannanna horfði háðu-
lega á gamla manninn, sem talaði um
drekann eins og hann væri kettlingur,
sem hefði falið sig. Hann skipaði her-
mönnum sínum að halda spurnum
fyrir um drekann og líta vel í kringum
sig, en svo þagnaði hann allt í einu og
góndi til fjallanna í vestri. Þar lagði
upp reykjarmökk, sem varð meiri og
meiri.
— Hvað er þetta? spurði foringinn
og benti á mökkinn.
— Þaó er reykur, svaraði Chan of-
ur sakleysislega.
— Já, eins og ég sjái það ekki, að
það er reykur — en hvaðan kemur
hann? Og lítið þér á — þarna koma
eldblossar í reyknum og það er eins
og þeir færist nær. . .
— Ojá, sagói Chan, — hann
föðurfaðir hans föðurföður míns upp-
lifði einu sinni ægilega jarðskjálfta og
á undan þeim hafði rokið svona úr
fjallinu. Það mundu þó ekki vera að
koma jarðskjálftar núna?
Jú, hermennirnir þóttust handvissir
um það! Þeir höfðu upplifað jarð-
skjálfta áður eða heyrt aðra segja frá,
hve skelfilegir þeir væru, og þeir vissu
aó þeir byrjuðu oft með eldgosum úr
fjöllunum. Þeir þóttust vissir um, að
þetta heimska fólk þarna í þorpinu
hefði ekki hugmynd um hve hættulegt
væri að vera þarna, og foringinn flýtti
sér að segja:
— Hér er enginn dreki! Ég verð aö
fara aftur á fund keisarans og segja
honum, að hér hafi ekki verið nema
lítill og pervisinn dreki, sem ég hafi
ekki einu sinni viljað sýna honum! Við
skulum halda af stað!
Svo skálmuðu hermennirnir hrað-
stígir á burt og þeir komu aldrei aftur
og enginn gerði boð eftir Motsi fram-
ar. En þarna urðu engir jarðskjálftar
og ekkertgos kom úr fjöllunum, þvíað
þau voru ekki eldfjöll. Eldurinn og
reykurinn kom nefnilega frá Motsi.
Það er lélegur dreki, sem ekki getur
spúð eldi og reyk.
Og svo lifði fólkið og börnin í friði
áfram hjá Chan gamla kennara og
Motsi hinum hjálpsama.
VESKAN
t83ÁRA
30