Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1982, Qupperneq 20

Æskan - 01.01.1982, Qupperneq 20
ÆSKAN 83ÁRA FJÖLSKYLDUÞkTTUR í umsjá Kirkjumálanefndar Bandalags kvenna í Reykjavík. '1! í n iiii / / * Einu sinni var Jesús boöinn heim til manns, sem var bæði þekktur og hátt settur. Jesús tók eftir því, að þarna voru margir svokallaðir betri borgarar meðal gestanna, og margir þeirra voru mjög ríkir. Húsbóndinn hafði auð- sjáanlega boðið mörgum, sem hann vissi, að myndu bjóða honum aftur. Þá varð Jesú hugsað til þess, hvernig Guð er. Hann gerði engan mun á fólki, en er jafngóður við alla — fallega og Ijóta — ríka og fátæka — góða og vonda. Og svo sagði Jesús þeim þessa sögu: Það var einu sinni maður, sem ætlaði að halda veislu, og hann bauð mörgum gestum. Þegar allt var tilbúið, og veislan gat farið að byrja, sendi hann þjóna sína af stað, og þeir áttu að segja við gestina: ,,Komdu, því nú er allt tilbúið", en engir af gestunum vildu koma. Einn sagði: ,,Ég er nú búinn að kaupa jörð, og ég verð að fara að skoða hana, ég get bara ekki komið". Annar sagði: ,,Ég er nýbúinn að kaupa 5 naut, og ég verð að fara og líta á þau. Þess vegna get ég ekki þegið boðið". Sá þriðji sagði: ,,Ég var nú að enda við að gifta mig, svo ég hef því miður engan tíma til að koma“. Svo kom þjónninn heim og sagði húsbónda sínum, að gestirnir kærðu sig ekki um að koma í veisluna. Þá varð húsbóndinn reiður og sagði: ,,Við bjóðum bara öðrum gestum. Flýttu þér nú, og reyndu að finna eins marga og þú getur". Margir af þeim, sem komu, voru haltir, aðra varð að leiða, því að þeir voru blindir og gátu ekki fundið veginn. Allt þetta fólk var mjög ánægt, og vildi gjarnan koma. Þjónninn bauð öllum, sem hann sá. Að stundu liðinni kom þjónninn til baka og sagði: Húsbóndi, nú hefi ég gert eins og þú sagðir mér, og þó er enn þá pláss fyrir fleiri gesti. Þá sagði húsbóndi hans: ,,Farðu út og leitaðu uppi alla, sem vilja koma svo hús mitt verði fullt“. Frá þessu sagði Jesús. Og svona er Guð. Guð vill að allir komi til hans, en mörgum finnst annað miklu þýð- ingarmeira, og neita boðinu. Eigum við ekki að hugleiða þessa sögu núna í ársbyrjun, og taka þá ákvörðun aö þiggja boð Guðs og reyna að ganga á hans vegum. Guð gefi ykkur öllum gott og heillaríkt ár 1982. H.T. 20

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.