Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1982, Qupperneq 21

Æskan - 01.01.1982, Qupperneq 21
ÆSKAN 83ÁRA Síðustu nemendur skólameistarans Frásögn eftir Bill Rose ÆSKAN 83ÁRA I heimalandi Ferenc Hrdlyka skólameistara í Aust- ur-Evrópu var litið upp til hans, sem mikilhæfs uppeldis- fræðings og skólamanns. En þegar hersveitir Hitlers brutust inn í land hans árið 1941, var hann sendur í fangabúðir og brennimerktur á annan handlegg. Vinir hans í Englandi og Ameríku ótt- uðust að þeir myndu aldrei framar sjá hann í þessu lífi. En Hrdlyka var bjargað. Þegar Dachau-fangabúðirnar voru opnaðar í stríðslok 1945 fannst hann þar. Þegar vinir Hrdlyka fréttu að hann væri heill á húfi, tókst þeim að koma því í kring, að hann flyttist til Ameríku. Og nokkrum mánuðum eftir fengið frelsi stóð hinn aldni skólameistari á þilfari eins Ameríkufarsins og sá skýja- kljúfa New York rísa úr sæ. Allir vinir hans og kunningjar frá því fyrir stríðið stóðu á bryggjunni og buðu hann velkominn. Meðal þeirra var systir hans, en á hinu friðsæla heimili hennar átti hann að búa í framtíðinni. Hrdlyka þakkaði hrærður móttökurnar, og svo ók hann til heimilis systur sinnar í útjaðri New York. Daginn eftir fékk Hrdlyka sér göngu út í skemmtigarð þar í nágrenninu, þar sem hópur drengja safnaðist utan um hann og gerði hróp að honum, vegna hins undarlega klæðnaðar þessa ókunnuga manns og hvíta skeggsins sem hann bar. ,,Sjáið karlinn", hrópaði einn af drengjunum. ,,Hvað ert þú að gera hingað í garðinn okkar gamli karl?" Gamli maðurinn brosti vingjarnlega til drengjanna og tók sér sæti á einum bekknum. Því næst tók hann út- skorna pípu upp úr vasa sínum og byrjaði að reykja. Þegar hann hafði setiö þarna stundarkorn og virt börnin fyrir sér, er voru að leik í garðinum, reis hann á fætur og gekk burtu. Krakkarnir hlupu á hæla honum, og hlógu að hinni snjáðu húfu hans og því hversu reikull og skjögr- andi hann var í göngulagi. Þegar gamli skólameistarinn kom aftur í garðinn daginn eftir, brosti hann til barnanna, eins og ekkert hefði í skorist. Þau hrópuðu að honum ókvæðisorðum, eins og daginn áður, en gátu ekkert skilið í því, að gamli maðurinn skyldi ekki stökkva upp á nef sér, en einungis brosa til þeirra af umburðarlyndi. Og þannig gekk þetta hvern dag um hríð, en smátt og smátt hættu börnin að gera hróp að þessum undarlega útlendingi, sem aðeins brosti góðlátlega, er þau reyndu að stríða honum. Og þar kom, að börnin fóru að brosa vingjarnlega til hans. En einn góðan veðurdag hættu börnin að sjá gamla manninn í garóinum. Það liðu margir dagar, án þess að hann kæmi, og börnin tóku að spyrjast fyrir um hann þarna í hverfinu. Loksins komust þau að því, hvar hann bjó og hringdu á dyrnar. Systir hans kom til dyranna og lauk upp. Hún var klædd sorgarbúningi. „Bróðir minn andaðist fyrir tveimur dögum", mælti hún við börnin. ,,Við sáum hann alltaf hérna í garðinum", sagði einn af drengjunum, ,,og stríddum honum í fyrstu." ,,En hvers vegna hættuð þið því?" spurði systir hans. ,,Ég veit það ekki", svaraði drengurinn. „Okkur fór bara ósjálfrátt að þykja vænt um hann". Gamla konan brosti með sjálfri sér, þegar hún lokaði dyrunum. Henni skildist að bróðir sinn hefði kennt börnunum það, sem þau myndu aldrei gleyma. En ef til vill var það gott, að þau vissu ekki að þennan lærdóm hafði hann kennt þeim án eigin vitundar, því frá því er nasistarnir höfðu misþyrmt honum í fangabúðunum, var hann gersamlega heyrnarlaus. 1. Saman göngum við götuna fram 2. Ding-Dang — klukkurnar klingja 1. Saman göngum við götuna fram 2. I kirkjuna til að syngja 1. Hér er kirkjan — við erum saman 2. Ding-Dang — klukkurnar klingja 1. Hér er kirkjan — við syngjum saman 2. kirkju er gaman að syngja 1. Guð er hér í kirkjunni sinni 2. Hann er hér — krjúptu niður 1. Guð er hér í kirkjunni sinni 2. Hljóður er sá, sem biður. 1 og 2. Hann er hér — Drottinn er hér Hallelú — Hallelú — Hallelúja. 21

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.