Æskan

Årgang

Æskan - 01.01.1982, Side 22

Æskan - 01.01.1982, Side 22
'ÆSKAN i83ÁRA Nviársdraumur T! að var kominn sjötti janúar. Jóla- leyfið var búið. Jólatréð hafði verið látið út í snjóinn, og rúið öllu sínu skrauti. Skrautið lá á stofuborðinu, milli stjaka með hálfbrunnum kertum. Per hafði baeði tekið þátt í undir- búningi undir jólin og því að ,,bera jólin út." Hvorttveggja hafði honum þótt jafn skemmtilegt. Per tók því með karlmennsku, að kökukassar móður hans voru nær því tæmdir. Þetta kvöld fékk hann venju- legt brauð og sætti sig vel við það. En það var eitt, sem Per hlakkaði ekki til: að taka saman skólabæk- urnar. Móðir hans hafði minnt hann á, að þetta þyrfti að gerast. Per lét svo bækurnar í tösku sína. Voru þær í góðu ásigkomulagi og hlífóarpappír utan um hverja bók. Skólataskan með bókunum var lát- in við rúm Pers. Drengurinn háttaði, þegar þessu var lokið og steinsofnaði strax. Það var nauðsynlegt að safna kröftum undir skólagönguna. Jólaleyfið var liðið. Þegar komin var hánótt, opnaðist skólataskan og landfræðin kom upp úr henni. Hún mælti: ,,Þekkirðu mig Per?" ,,Ja—á," sagði Per. ,,/Etlarðu að ferðast með mér á nýja árinu?" spurði landafræðin. Per góndi út í loftið. Hann mundi í svipinn ekki eftir neinni landafræði- ferð. Landafræðin mælti: ,,í fyrra ferðuðumst við um Evrópu. Á þessu ári eigum við að ferðast til Ameríku. Við komum ekki úr þeirri för fyrr en við getum teiknað kort af borgum, vötnum, elfum, fjöllum o. fl. Per sagði: ,,Hittum við Indíána?" ,,Svo getur farið," svaraði landa- fræðin. ,,Ja—á," sagði Per. Hann var spenntur fyrir Indíánum. Honum haföi ekki til hugar komið, að svo skemmti- legt væri að tala við landafræðina og raun bar vitni. Landafræðin hneigði sig fyrir Per, og fór að því búnu niöur í töskuna. Svo kom náttúrufræðin. Hún mælti: ,,Ferðu með mér í ferðalag á þessu ári, Per?" Hann svaraði: ,,Pu—. Það er ekkert annað í þér en um blóm, dýr og þess háttar." ,,Ég ferðast um náttúrunnar stóra, dásamlega ríki, og skýri dásemdir þess sem guð skapaði. Það er líka feróalag." Náttúrufræðin fletti blöðum sínum, og var montin af myndum þeim og teikningum, er hún var prýdd með. Hún hélt áfram máli sínu: „Sjáðu! Á þessu ári förum við um lönd efna- fræðinnar og eólisfræðinnar. Það eru lönd full leyndardóma og dulrænna lögmála. Við höldum svo inn í heima rafmagnsins. Þú munt verða hrifinn en verða var við smæð þína. Er þú kemur úr þessari ferð munt þú dást að almætti skaparans." ,,Ja—á," svaraði Per. Náttúru- fræðin gat komið vel oróum að því, sem hún hafði að segja. Per þótti hún skemmtileg. Náttúrufræðin bar sig tígulega. Hún sagði ekki meira og fór í töskuna. Þá komu biblíusögurnar. Þessi bók bar litlu systur sína — sálmabókina — á handleggnum. Þessi bók mælti: ..Ætlarðu að ferðast með mér á nýja árinu, Per?" Per svaraði: Ætlar þú einnig að ferðast?" ,,Já, ég ætla til landsins helga. Þú skalt koma með mér til Jerúsalem, Getsemane og Golgata. Við skulum koma á staðina, þar sem Jesús dvaldi. Við skulum t. d. ganga fram með Genesaretvatninu." Per sagði: ,,Ég hef oft farið þetta." Hann var ekki hrifinn af þessari væntanlegu ferð. ,,Já, það er rétt," sagði bókin. ,,En þessi ferð er um andans ríki, og þar eru allir hlutir ávallt nýir og töfrandi." Þú verður hrifinn af því, sem þú heyrir og sérð. Þú verður svo glaður og þig langar til að syngja. Þessvegna skulum við hafa systur mína — sálmabókina — með okkur. Allt, sem ég fræði þig um, endurtekur hún í bundnu máli og er stuttorð. En hún hefur tónana (lögin) til hjálpar. ,,Ja— á,“ sagði Per. Sálmabókin mælti: ,,Ég hef hlut- verki að gegna um fram aðrar bækur. Á helgum dögum hvílast allar skóla- bækur, að mér undanskilinni. Ég fer með fólki í kirkju. Meðhjálparinn festir upp töflu með númerum. Og í mér eiga kirkjugest- irnir að finna tilsvarandi númer. Við munum fara margar ferðir til kirkju í fylgd hvort með öðru, án annarra bóka. Þegar vel liggur á fólki, og það vill syngja, er margt í mér, sem það getur sungið. Einnig geta hinir harm- þrungnu fengið margt hjá mér til þess að syngja. Ég er mjög þýðingarmikil bók." 22

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.