Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1982, Síða 24

Æskan - 01.01.1982, Síða 24
- segir poppsöngvarinn BOB DYLAN Það vekur jafnan mikla athygli þegar frægt fólk snýst til kristinnar trúar. Á síðustu árum og áratugum hefur það gerst nokkrum sinnum að þekktir popp-söngvarar hafa tek- ið afturhvarfi og játað trú á Jesúm Krist. Sem dæmi má nefna „dreifbýl- issöngvarann“ Johnny Cash, Cliff Richard, sem lengi söng með hljóm- sveitinni The Shadows, rokk- og ádeilusöngvarann Barry McGuire, Dan Peek, sem var einn þriggja meðlima hljómsveitarinnar America, og Joe English, sem var trymbill í Wings, hljómsveit Paul McCartneys, í nokkur ár. Þannig mætti áfram telja. Allir hafa þessir söngvarar gefið út eina eða fleiri hljómplötur, sem hafa að geyma texta með kristilegum boðskap, og vilja þeir á þann hátt nota tónlist sína til að koma boð- skapnum um Jesúm Krist á framfæri. Mesta athygii hefur þó afturhvarf Bob Dylans 1978 líklega vakið. Hann hefur nú gefið út þrjár hljómplötur sem hafa að geyma kristinn boðskap, þ. e. a. s. „Slow Train Coming'1, sem kom út árið 1979, „Saved“, sem kom út 1980, og nú í haust kom platan „Shot of Love“. Dylan byrjar alla hljómleika sem hann heldur með orðunum: „Ég syng fyrir ykkur í krafti Guðs og í Jesú nafni.“ Hljómleika- sviðið er ræðustóllinn hans. Þannig hefur það að vísu alltaf verið, en nú er boðskapurinn annar. Nú vill hann benda á Jesúm Krist sem frelsara. Fyrir nokkru birtist fyrsta viðtalið við Bob Dylan síðan hann varð krist- inn. í þessu viðtali staðfestir hann það sem komið hefur fram á þremur síðustu hljómplötum hans: — Ég er endurfæddur kristinn maður. Hann segir frá því að árið 1978 hafi Jesú Kristur birst honum á sérstakan hátt í sýn. Heilagur andi var nálægur og hann tók afturhvarfi. Hann segir síðan: — Ýmsir halda að menn verði að vera jafnvægislausir og uppfullir af alls konar vandamálum til að geta frelsast. Fólk heldur jafnvel að það gerist vegna þunglyndis. Þannig var því alls ekki farið með mig — þvert á móti. Mér hafði liðið sérstaklega vel, einkum árið 1978. Allt gekk vel og ég var í góðu jafnvægi. En á langri hljómleikaferð þetta ár var með mér góður vinur minn, sem sagði mér ýmislegt gott um sjálfan sig og líf sitt, m. a. sagði hann mér frá Jesú. Bob Dylan heldur áfram: — Ég þóttist vita með sjálfum mér að ég hefði ekkert að sækja til þeirrar persónu eða þeirrar trúar, svo að ég vísaði þessu frá mér og sagði: „Ef til vill einhvern tíma seinna." Nokkrum dögum eftir að hljóm- leikaferðinni lauk var ég heima hjá mér og hafði ekkert fyrir stafni. Þá hafði ég samband við þennan vin minn aftur og sagðist nú hafa tíma til að hlusta og jafnvel læra meira um þessi mál. Ég var tortrygginn og spurði ótal spurninga, sem mér fannst ég verða að fá svar við. Dylan hitti einnig nokkra unga presta, en hann var einnig tortrygg- inn gagnvart þeim og fullur efa- semda. En hann var þó tilbúinn til að hlusta. — Ég hafði sjálfur beðið um meiri upplýsingar, segir hann. Bob Dylan skilur enn ekki sjálfur hvað gerðist í raun og veru þegar hann byrjaði allt í einu að sækjast eftir fræðslu um Biblíuna og boðskap hennar. — Einn morguninn vaknaði ég kl. 7 og stuttu síðar var ég byrjaður að rannsaka ritninguna. Það er ekki rétt eins og sumir hafa haldið fram að ég hafi tekið mér þriggja mánaða leyfi til þess að fræðast um boðskap Biblí- unnar. Ég hef ekki tækifæri til að taka mér svo langt frí, en ég hef nægan tíma til að halda áfram að lesa Biblí- una og fræðast um boðskap hennar á sama hátt og allir aðrir kristnir menn. Dylan er spurður að því hvort hann sé ekki hræddur um, að það sem hann hafi nú sagt verði notað gegn honum, t. d. eftir 5 ár, ef hann hafi þá breytt um skoðun. — Nei, eiginlega ekki. Þetta erein af ástæðunum fyrir því að ég hef ekki fyrr tjáð mig opinberlega um þessa hluti í viðtali. Ég vildi vita hvað gerð- ist og ég held að héðan af mundi þeir er endur^œddur hriátinn muÉur

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.