Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1982, Page 36

Æskan - 01.01.1982, Page 36
ÆVINTÝRI RÓBÍNSONS KRÚSÓ eyra Ijónsins og hleypti skotinu gegnum hausinn, svo dýrið steindrapst. Síðan fló Róbínson húðina af Ijóninu og breiddi hana til þerris yfir káetuna. Enn voru liðnir tíu dagar og ekki hafði ræst sú ósk Róbínsons, að hann fengi að mæta ensku eða portúgölsku kaupskipi. Nesti hans var að þrotum komið, og hafði hann þó haldið svo spart á, sem frekast var unnt. En nú sá hann, að strendurnar fóru að verða byggðar og bar öðru hverju fyrir hann svarta menn og nakta. Einu sinni lagði hann þar að, er hann sá villimenn allmarga á ströndinni, og gerði hann þeim skiljanlegt með bendingum, aö hann vildi fá vistir. Hlupu þá nokkrir af svertingjunum af stað og komu aftur með vindþurrkað kjöt og korn í poka. En með því hvorugir trúðu öðrum, þá var ekki að vita, hvernig vistirnar ættu að afhendast. En það fundust fljótt ráö til þess. Villimennirnir báru vistirnar ofan að flæðarmálinu og hörfuðu síðan kipp- korn frá sjónum, en Róbínson og Xúrý tóku þær og fluttu út í bátinn, og þá færðu villimennirnir sig aftur nær. Róbínson tjáði þeim þakklæti sitt með bendingum og látbragði, en í sama bili komu tvö villidýr hlaupandi ofan úr fjalli og eltust þau í ákafa. Flýðu þá svertingjar aliir, nema einn stóð eftir og hélt á lensu. Dýrin stukku út í sjóinn og byltu sér þar; sá Róbínson þá, að þetta voru tígrisdýr. Annað þeirra kom allnærri honum og skaut hann það gegnum hausinn. Þá stakk það sér, en kom brátt upp aftur og gekk á því þangað til það drapst og flaut hreyfingarlaust á sjónum. Hitt tígris- dýrið hafði fælst við skotið og stokkið burt í skyndi. Eins var um svertingjana, að þeir höfóu skelfst við skotið, og lágu sumir þeirra eins og dauðir á jöróinni. Róbínson benti þeim vinalega, en það var samt ekki fyrr en eftir dálitla stund, að nokkrir þeirra áræddu að koma nær. En smám saman skildu þeir hvorir aðra og komu sér vel saman; fengu svertingjar kjötið af tígrisdýrinu, en Róbínson skinnið. Auk þess færðu svertingjarnir honum hreint og gott vatn til ferðarinnar og talsverðan vista- forða. Eftir það siglir Róbínson í ellefu daga og lendir hvergi; hélt hann jafnan í suður og kom loks í námunda við Grænhöfða. Þá sá hann skip eitt úti á rúmsjó, og komst hann til þess eftir fjögurra stunda siglingu. Þetta var portúgalskt kaupskip, og var skipstjóri þegar fús á að taka við þeim Róbínson og Xúrý. Varð Róbínson þá svo fegin fjörlausninni, að hann bauð skipstjóranum aleigu sína í launa skyni. En hann var drengur hinn besti og þáði ekki boðið. Seinna mælt- ist hann þó til við Róbínson, að hann fengi að halda Xúrý hjá sér og hét að uppala hann í kristilegri trú og gefa hann frjálsan, þegar hann væri fullorðinn. Reyndar sá Róbínson eftir sveininum, en samt varð hann við tilmæl- um skipstjórans. Skipstjórinn keypti af honum bátinn, byssurnar og dýraskinnin fyrir góða upphæð, svo það var öðru nær en Róbínson færi tómhentur í land, þegar skipið hafði hafnað sig þar við land sem til var siglt, en það var í Brasilíu. Næst: Róbínson í Brasilíu. Skipbrot. HVAÐA LEIÐ Á AÐ FARA? Nú er betra fyrir froskmanninn að rata rétta leið að fjársjóðnum, því annars á hann á hættu að lenda í hákarlskjafti eða kolkrabbaörmum og er hvort tveggja miður gott. 32

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.