Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1982, Síða 50

Æskan - 01.01.1982, Síða 50
„ÉG ER DÍSA, EN HANN ER DENGI 1 vö systkini, litla bróður og litlu systu, langaði til að leika sér á engi, sem angaði af marglitum blómum, en þau gátu ekki komist þangað, því að á milli þeirra og engisins var djúpur lækur. Þá gengu þau fram á lækjar- bakkann og kölluðu: „Kvakmunni froskur, Kvikmunni froskur!" ,,Já, hér er ég“, sagði froskurinn, ,,hvað viljið þið?“ Bróðir litli svaraði: Hún er Dísa, en ég er Dengi, dátt er og gaman úti á engi, spyrjum því Kvikmunna, froskinn frækinn, flyturðu okkur yfir lækinn? „Getið þið haldið niðri í ykkur andanum, ef nefið er niðri í vatninu?" spurði froskurinn. ,,Nei, það getum við ekki“, sagði litli bróðir. ,,Þá verð ég að segja ykkur þaó, þó mér þyki það leitt, að ég get ekki borið ykkur yfir lækinn. En ég skal gefa ykkur gott ráð: Ef þið viljiö komast yfir lækinn, þá farið til smiðsins og látið hann gera brú yfir hann.“ Litli bróðir og litla systa fóru nú til smiðsins og kölluðu: „Meistari Viðar- kljúfur! Meistari Viðarkljúfur!" ,,Já“, sagói smióurinn, ,,hér er ég. Hvað er ykkur á höndum," Þá mælti litla systa: Ég er Dísa, en hann er Dengi dátt er og gaman útí á engi, froskurinn vill ei lið sitt lána, læturðu, smiður, brú á ána? ,,Allt í lagi“ sagði smiðurinn. ,,Á brúin að vera úr timbri eða stein- steypu." ,,Þú skalt reisa þrjá stöpla úr steypu og leggja svo borð ofan á þá. Til hlið- anna á aó vera handrið. Það má vera úr timbri". ,,Gott og vel“, sagði smiðurinn, hvort ætlið þið að borga með gulli eða silfri.“ — Við eigum nú ekkert af því tagi, svaraði litli bróðir, en ég á sprellikarl, sem reyndar vantar á annan fótinn, og Dísa á brúðu, sem höfuðið er dottið af. Þetta viljum við láta þig fá. — Því miður get ég ekki gert mér þessi smíðalaun að góðu. En farið þið til kóngulóarinnar, hún gerir þetta ef til vill fyrir ekkert. Systkinin fóru nú til kóngulóarinnar og kölluðu: — Frú Frágeng! Frú Frá- geng! — Já, svaraði kóngulóin. Hvaða erindi eigið þið. Þá mælti litli bróðir: Hún er Dísa, en ég er Dengi dátt er og gaman úti á engi, froskurinn vill ei lið sitt lána lætur ei smiður brú á ána. — Jæja, þá skal ég gera það, sagði kóngulóin. — En við höfum enga peninga, sagði systa. — Þess þarf ég heldur ekki, litlum börnum liðsinni ég fyrir ekki neitt. Svo fékk hún sér bát sem gerður var úr víðilaufi og fór á honum fram og aftur og þá var brúin tilbúin. Og nú átti systa litla að fara fyrst yfir um. Systa sagði nú: — Bara aö brúin haldi mér. Ég er ekki viss um það. — Hvað er þetta, sagði kóngulóin. Ég hef átta fætur, en þið bara tvo. Áfram nú og yfir um. Þá setti bróðir litli kjark í sig, sté út á brúna og hóf göngu sína. En brúin svignaði, og allt í einu brast hún í sundur. Litli bróðir hefði vafalaust dottið í lækinn, ef systa hefði ekki náð í hann. — Þetta hefði ég ekki haldið, sagði kóngulóin, en svo er sem mér sýnist, brúin er brotin. Ég get nú ekki orðið ykkur meir að liði, en ég vil ráða ykkur aö fara til Vetrarins, hann byggir traustar en smiðurinn. Litli bróðir og litla systir létu ekki segja sér þetta tvisvar. Þau fóru til Vetrarins og hrópuðu: — Desember- maóur! Desembermaður! — Já, svaraði Veturinn, hér er ég. Hvað viljið þið mér krakkar? Systa mælti þá fremur dauf í bragði: Ég er Dísa, en hann er Dengi, dátt er og gaman úti á engi, froskurinn vill ei lið sitt lána, lætur ei smiður brú á ána. Kónguló byggði að vísu brúna, er brotin og slitin liggur núna. 46

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.