Æskan - 01.01.1982, Page 52
SAGAN UM KRISTÓFER KÓLUMBUS
1. Um miðja fimmtándu öld var borgin Genúa á Norður-Ítalíu ein mesta
verslunarborgin í Evrópu. Þangað komu skip úr öllum áttum, hlaðin dýrmætum
varningi frá framandi löndum. Við höfnina í Genúa var líf og fjör og mikið af allra
þjóða fólki, og strákarnir í borginni höfðu gaman af að halda sig þar og skoða
skipin og góna á útlendingana. I þessum strákahóp var rauðhærður hnokki,
sem hét Kristófer, og tveir bræður hans. Þeir voru synir fátæks silkivefara, sem
hét Dominico Kólumbus. Ekki veit maöur um fæðingarár Kristófers og því síður
um fæðingardaginn, en talið er að hann sé fæddur árið 1446.
2. Þegar Kristófer Kólumbus var fjórtán ára var ekki hægt að hemja hann
heima lengur og hann réð sig á skip, sem átti að sigla til eyjarinnar Chios í
vínflutningum. En eftir nokkur ár settist hann aftur um kyrrt í Genúa til að hjálpa
föðursínum við vefnaðinn. Þó sigraði útþráin hann aftur árið 1473 og nú fór svo
að hann kom aldrei framar til Genúa. Hann var í siglingum næstu þrjú árin, og
1476 höfðust spurnir af honum í Lissabon. Þá hafði hann eignast kaupskip
sjálfur.
3. Portúgalar voru mikil siglingaþjóð í þá daga og þar voru margir land-
könnuðir, og þarna mun Kólumbus vafalaust hafa fengið hugmyndina að sinni
ferð. Þegar hann fór til Englands og l'slands nokkru síðar hefir hann vafalaust
frétt um ferð Leifs heppna til Vínlands. Þegar hann kom aftur til Portúgal komst
hann í samband við lækninn Paolo Toscanelli frá Flórens, sem var einn af
lærðustu mönnum sinnartíðar.
4. Toscanelli hafði gert uppdrátt sem sýndi að besta leiðin til að komast til
Indlands væri sú að sigla í vestur, og þessi uppdráttur varð besta stoð Kólum-
busar. Hann náði nú tali af kónginum í Portúgal og lagði áætlanir sínar fyrir
hann. Kónginum leist vel á þær, en Kólumbus gerði svo miklar kröfur, að
kóngurinn vísaði honum frá sér og Kólumbus féll í ónáð hjá honum og varð að
flýja frá Portúgal.
— Hvert ætlarðu með þennan stóra
stein?
— Það er nú bara sýnishorn af húsinu
mínu, sem ég er að reyna að selja honum
bróður þínum.
— Mér er alveg óskiljanlegt hvað ég
hefi gert við sjálfblekunginn minn.
— Máske þér hafið notað hann í hugs-
unarleysi til að mæla í mér hitann.
ÓTRYGG FÓTFESTA
Norðmaðurinn: Og ég sem gaf syni mín-
um ameríkönsk hickory-skíði, indverska
skíðastafi, þýska vettlinga og enskar
legghlífar! Og svo tapaði hann í fimmtíu
kílómetra-göngunni!
48