Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.05.1983, Qupperneq 12

Æskan - 01.05.1983, Qupperneq 12
Anna Laufey Árnadóttir var í 6 ára bekk í Fellaskóla sl. vetur en núna er hún komin í sumarfrí. Æsk- an spuröi hana hvaö hún ætlaði aö gera í sumar. „Ég fer til Akureyrar og verö þar í nokkrar vikur,“ sagöi Anna; en þar á pabbi hennar heima. „Mér finnst miklu skemmtilegra á Akureyri en í Reykjavík. Þar er hægt aö gera miklu fleira. Einnig á ég marga vini þar. Besta vonkona mín heitir Lena.“ - Hefurðu oft farið til Akur- eyrar? „Já, mjög oft þegar ég á frí. Þá fer ég meö flugvél." - Ertu ekkert hrædd aö fljúga? „Bara svolítið. Sérstaklega þegar vélin er aö lækka sig áður en viö lendum á flugbrautinni. Þá pompar hún svo óþægilega og ég þarf aö vera í belti. Mamma biður alltaf flug- freyjuna um að passa mig og þá er ég örugg. Þaö er gaman þegar flug- freyjan gefurfarþegunum appelsín, súkkulaöi og kex á leiðinni." - Áttu einhver systkini, Anna? „Já, eina systur. Hún heitir Alda Hanna og er tveggja ára. Ég passa hana oft og finnst það gaman. Hún er líka svo mikil dúlla." Anna Laufey Árnadóttir - Boröar þú sælgæti? „Já, en ekki mikið. En ég skal segja þér aö hún Alda Hanna systir mín er algjör sælgætisgrís." Hef verið í Svíþjóð - Hefurðu komið til útlanda? „Einu sinni þegar ég var lítil. Þá fór ég með mömmu til Svíþjóðar. Ég man aö þaö var mikill hiti á ströndinni. Sandurinn var heitur og sólin sterk. Svo fór ég í tívolí." - Horfirðu mikið á sjónvarpið? „Já. Mér finnst Tommi og Jenni skemmtilegastir. Stundin okkar er líka ágæt.“ - Trúir þú á Guð? „Já, ég veit að hann býr uppi í himninum. Hann er ósýnilegur og passar öll börn. Guð grætur þegar við gerum eitthvað Ijótt af okkur og líka þegar við eigum bágt. Ég kann þrjár bænir: Faðir vorið, Legg ég augun aftur, og Vertu, Guð faðir, faðir minn.“ - Ertu stundum óþekk stelpa? „Það kemur fyrir. Helst þegar ég vil hafa krakka inni en fæ það ekki- Þá er sagt að við ruslum svo mikið út.“ - Hvaða matur finnst þér bestur? Anna hugsar sig svolítið um. „Pylsur, bjúgu og kótelettur," segic hún svo. „Hafragrautur er besti grauturinn. Maður verður svo sterk- ur af honum,“ bætir hún við. - Hefurðu farið í leikhús? „Já, ég hef bæði séð Gosa og Línu langsokk. Mér fannst Lína svakalega fyndin þegar hún var að Rabbað við Önnu Laufeyju, 7 ára 12

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.