Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1983, Blaðsíða 14

Æskan - 01.05.1983, Blaðsíða 14
- Afbrotamaðurinn, sem saknað er, sást síðast í nánd við Granheim- stöðina. Þá var hann klæddur í Ijós- gráan jakka, dökkbrúnar flauels- buxur, hvíta skyrtu, en hann hafði ekkert bindi. Hann var berhöfðað- ur. Þeir, sem kynnu að geta veitt einhverjar upplýsingar, eru beðnir að láta rannsóknarlögregluna í Osló vita, sími 420615, eða hringja í næstu lögreglustöð. - Anton lokaði fyrir útvarpið. „Nálægt Granheim-stöðinni," endurtók hann og leit á bróður sinn. „Það er hreint ekki svo langt í burtu.“ Róbert svaraði ekki strax. Hann sat kyrr og leit út fyrir að vera mjög hugsi. „Hugsaðu þér bara, ef við gæt- um klófest manninn," hélt Anton áfram. „Við skulum fara af stað og leita að honum,“ sagði Róbert skyndi- lega. Hann hafði einmitt verið að hugsa um það sama. Það var ekki svo lítið freistandi að hafa mögu- leika á að hafa hendur í hári al- ræmds glæpamanns, ekki síst þar sem hann var stórhættulegur, hvar sem hann fór. „Við ætlum að skreppa út, marnma," sagði Róbert. Móðir þeirra sat inni í stofu og var að prjóna. Hún hafði ekki heyrt aug- lýsinguna í útvarpinu. „Við verðum kannski dálitla stund." „Komið þið nú ekki mjög seint heim í kvöld, drengir mínir," sagði frú Petersen. „Friðrik frændi ykkar frá Osló, kemur í heimsókn." Þeir reikuðu fyrst góða stund um næsta nágrenni án þess að af- marka nokkurt ákveðið svæði. Þeir gengu um þessar fáu götur og torg, sem í bænum voru, en hvergi komu þeir auga á mann, sem líktist lýs- ingunni á þessum, sem auglýst var eftir. „Það er greinilegt, að hann held- ur sig ekki meðal fólks, ekki síst þar sem nýbúið er að auglýsa eftir hon- um,“ sagði Anton. „Við ættum heldur að færa okkur nær Granheim, þar sást hann þó síðast." Róbert var á sama máli. Satt að segja hafði hann litla trú á að rekast á manninn einhvers staðar á miðju torgi. „Það eru margir góðir felustaðir hér í nágrenninu," sagði Róbert, „ef hann er ennþá hér í þessu héraði, þá hlýtur hann að vera í runnunum umhverfis Bugðulæk og Breiðavatn. Þeir lögðu nú út á þjóðveginn, og eftir hálfrar klukkustundar göngu voru þeir komnir að veginum, sem lá að Breiðavatni. „Nú er best að fara varlega," sagði Anton, „það er aldrei að vita, hvað komið getur fyrir." Þeir læddust áfram eins og Indí- ánar í vígahug. Fyrst í stað var Ant- on á undan, en síðan tók Róbert við leiðsögninni. Allt í einu þreif Anton í handlegg- inn á Róbert. Ekki góður bóndi. 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.