Æskan - 01.01.1986, Qupperneq 5
Vormótið að Laugalandi.
I maí 1985 var að venju haldið Vormót
barnastúkna á Norðurlandi, að þessu
sinni að Laugalandi í Eyjafirði. Þátt-
takendur voru frá barnastúkunum
Sakleysið nr. 3, Von nr. 75 og Samúð
nr- 102 frá Akureyri og Leiðarstjörn-
unni nr. 136 frá Dalvík. Á mótinu var
keppt í knattspyrnu, handbolta og
sundi. Fyrirtæki IOGT á Akureyri,
Hótel Varðborg og Borgarbíó gáfu
veglega verðlaunagripi til að keppa
um í knattleikjum en barnastúkan
Æskan hafði gefið glæsilegan bikar
sem sundfólkið þreytti kapp um. Þann
bikar vann Sakleysið í þriðja sinn - og
nú til eignar. Sakleysið var raunar
einnig hlutskarpast í handknattleik og
knattspyrnu.
Farið var í ýmsa leiki og skipt liði til
reiptogs milli drengja og stúlkna.
Stúlkurnar unnu glæsilega - en ekki
fylgdi sögunni hvort þær voru fleiri
eða einfaldlega sterkari.
Sömu fyrirtæki og fyrr voru nefnd
gáfu veitingar, pylsur og ávaxtasafa.
Þau leystu líka alla mótsgesti út með
gjöfum - að fornum sið - gáfu þeim
könnu með merki Góðtemplararegl-
unnar. Gott veður var mótsdaginn og
allir skemmtu sér hið besta.
í Galtalækjarskógi
I Galtalækjarskógi söfnuðust barna-
stúkur á Suðurlandi saman seint í júní.
Þær komu úr Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði, Keflavík, Garði og undan
Eyjafjöllum.
Eins og undanfarin ár var keppt í
þríþraut, þ.e. langstökki án atrennu,
hlaupi og boltakasti. Þátttaka var góð
og keppnishugur mikill enda til ágætra
verðlauna að vinna.
Baldur Brjánsson töframaður mætti
á staðinn og plataði allt liðið upp úr
skónum við góðar undirtektir! Júlíus
Sigurðsson þandi nikkuna og radd-
böndin (eins og sjá má á mynd) og
krakkarnir létu ekki sitt eftir liggja í
leik og söng. Dálítill strekkingur hafði
sett hroll í mótsgesti en hopp og hí
með Júlla og heitar pylsur, sem Ungl-
ingareglan veitti, yijuðu fljótt og vel.
Að þessu sinni var líka snætt inni í
nýjum og glæsilegum skála Sumar-
heimilis templara.
Knattspyrnu- og handknattleikslið bst. Sakleysið nr. 3
Þannig er alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast í
barnastúkustarfinu — eins ogýmsum öðrum
góðum félögum fyrir börn og unglinga. Og
jafnframt glöðum leik mótast í vitundinni vissa um
hve miklu skiptir að lifa heilbrigðu lífi og temja sér
hollar venjur, vera hjálpsamur og koma vel fram
við alla. Og það er ekki lítilvœgt.......
Bst. Æskan — Félagsvist
5