Æskan - 01.01.1986, Qupperneq 8
X f
OG HAVAXIN DRAUMADIS
SIGURÐUR HELGI í VIÐTÆLI
Fyrir síðustu jól kom út platan
Friðarjól með þeimfeðgum, Pálma
Gunnarssyni og Sigurði Helga. Sá
síðarnefndi er aðeins ellefu ára og
þetta er ífyrsta sinn sem hann syng-
ur á plötu. Friðarjól fékk mjög góð-
ar viðtökur — var með söluhæstu
plötunum - og þeir feðgar fengu
mjög lofsamlega dóma í blöðum.
Par sem Sigurður Helgi er á
aldur við marga lesendur Æskunn-
ar þótti okkur vel við hœfi að taka
hann tali til að kynna hann nánar
fyrir lesendum blaðsins. Við sóttum
hann heim í Garðabœ á gamlaárs-
dag og lögðum fyrir hann nokkrar
spurningar.
Ekkert gaman í kór
Sigurður Helgi steig fyrstu skrefin í
sönglistinni með Barnakór Garðabæj-
ar. Hann er nýlega hættur að æfa með
honum. „Ef maður ætlar að vera í kör
þá þarf maður að stunda æfingar mjög
vel,“ sagði hann. „Stundum eru æfing-
ar um helgar en þá er ég oftast í
Reykjavík hjá pabba mínum. Svo
finnst mér ekkert sérstaklega gaman í
kór.“
—Hafði þig dreymt lengi um að feta
í fótspor pabba og mömmu (Þuríðar
Sigurðardóttur) og syngja inn á plötu?
„Já, ég hafði hugsað um að það gæti
verið gaman. Þegar pabbi talaði við
mig í haust fékk ég mitt fyrsta tæki-
færi. Upphaflega átti að taka plötuna
upp í Svíþjóð í fyrrasumar en það var
hætt við það vegna of mikils kostnað-
ar. Um tíma leit út fyrir að ekkert yrði
af þessu en svo fór málið aftur á skrið
og upptakan fór fram í Hljóðrita í
Hafnarfirði í nóvember og byrjun
desember. Það mátti ekki seinna vera
svo að hún kæmist út fyrir jól.“
-Var ekki gaman að fá þetta tæki-
færi?
Sigurður jánkaði því. „Upptökurnar
gengu ágætlega fyrir utan einn dag en
þá var aðeins hægt að taka upp eitt
lag, - lagið Jólafrið. Ég þurfti að
syngja það aftur og aftur í hljóðverinu.
Það var vegna þess að ég var ekki í
essinu mínu og ekki í góðu skapi þann
daginn. Ég hafði ekki sofið nógu vel
nóttina áður.“
— Þuríður, mamma hans, bætti við
að það hefði tekið dálítinn tíma fyrir
Sigurð að venjast því að syngja með
heyrnartól á eyrunum. Heyrnartólin
þurfti hann að hafa til að heyra hljóm-
sveitarundirleikinn.
Ánægður með útkomuna
Sigurður Helgi sagði að það hefði
helst komið sér á óvart við upptök-
urnar hvað söngurinn hefði þurft að
vera nákvæmur og erfitt að gera upp-
tökumönnunum til hæfis. Eftir að hafa
sungið sama lagið nokkrum sinnum
var ein upptakan valin á plötuna.
„Ég er ofsalega ánægður með plöt-
una,“ sagði Sigurður Helgi þegar við
spurðum hann um það. „Ég lék hana
sama daginn og hún kom út - og síðan
ekki meir. Ég var búinn að syngja og
heyra lögin svo oft í hljóðverinu.“
-Hvernig var svo að heyra í sjálfum
sér í útvarpinu?
„Það er dálítið skrítið því að manni
finnst röddin breytast. En það var
ánægjulegt að útvarpsmennirnir
skyldu vilja leika lögin.“
—Langar þig ekki til að vera með á
fleiri plötum?
„Jú, ég hefði ekkert á móti því.“
Reikningurinn
leiðinlegur
Sigurður Helgi er í 5. KS í Flata-
skóla.
„Það er stundum gaman í skólanum
en líka stundum leiðinlegt,“ svaraði
hann er spurt var um þau mál.
„Skemmtilegustu fögin, sem ég læri,
eru landafræði, kristinfræði og skrift.
Reikningurinn er leiðinlegastur."
Hann lagði áherslu á síðustu setn-
inguna.
8
i