Æskan - 01.07.1986, Page 51
lPpskrift að kókóskúlum
Frábæra Æska.
ert alveg pottþétt barnablað! Þið
|^®ttuð gjarnan birta veggmyndir af
enu, Queen og Prince. Sá síð-
astuefndi er eftirlætis-tónlistarmaður
minn. Þið mættuð segja meira frá hon-
Urn í poppþættinum. Svo mættuð þið
Vera með fleiri spurningaleiki í svipuð-
Urn dúr og skólarnir taka þátt í. Okkar
a milli er alveg frábært!
Að síðustu sendi ég ykkur uppskrift
a kókoskúlum. Hún er svona:
100 gr smjörlíki
75 gr flórsykur
75 gr kókosmjöl
3 msk kakó (dökkt)
Vanilludropar
Hrærið öllu saman og gerið litlar
^ulur.
Bless, bless,
Ein nafnlaus
að dejja úr ásí
hæ!
% ætla að lýsa draumaprinsinum
trUnurn. Hann er lítill miðað við aldur
°8 með skolleitt hrokkið hár. Hann er
islega sætur og skemmtilegur. Hann
^ með blá augu og tekur þátt í
'Próttum.
Bæ, bæ
Ein að deyja úr ást
^sífirskur draumapríns
K*ra Æska.
s le) erum hérna tvær á Austurlandi
111 viljum lýsa draumaprinsinum
*ar- Hann er dökkhærður með brún
uJ8u °g frekar lítill. Hann er pottþétt-
a skíðum, einnig í fótbolta og sundi.
ið vonum að þú birtir þetta.
Tvcer ástfangnar á Austfjörðum
Bréfaskipti
Kæra Æska.
í fimmta tölublaði birtust nöfn
tveggja stelpna frá Filippseyjum sem
vantaði íslenska pennavini. Einnig
rakst ég á nafn stelpu frá Sádi-Arabíu.
Ég hef dálítinn áhuga á að skrifa þess-
um stelpum en ég veit ekki á hvaða
tungumáli það ætti að vera. Á ég að
skrifa á ensku?
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna,
Ein í vandrœðum
Svar: Prófaðu að skrifa þeim á ensku.
Margir unglingar í Asíu kunna dálítið
fyrir sér í því tungumáli. Það var ís-
lensk stelpa sem gaf okkur upp þessi
nöfn og hún hefði áreiðanlega tilgreint
það í bréfi sínu ef það hefði verið
eitthvert annað tungumál sem átti að
skrifa.
Sparaði ÓIi pcninga?
Óli kom hróðugur heim úr skólan-
um og sagði við bróður sinn:
- Ég sparaði mér 5 kr. með því að
hanga aftan í strætó.
- Þú hefðir átt að hanga aftan í
leigubfl, þá hefðirðu sparað 300
krónur.
Sendandi: Ein á Akureyri
Litið áslarævintýri
Kæri Æskupóstur!
Ég er áskrifandi að blaðinu og hef
verið það lengi. Mér finnst það æðis-
lega skemmtilegt. Fyrir hálfu ári birtist
nafn mitt í pennavinadálkinum. Þrjár
stelpur skrifuðu mér en aðeins einn
strákur. Ég ákvað að skrifa einni stelp-
unni og svo stráknum. Hann á heima í
Reykjavík en ég fyrir norðan. Hann er
jafngamall mér, - 13 ára. Það tókst
svo góð vinátta með okkur í bréfunum
að við ákváðum að hittast og sjá hvort
annað þegar ég var á ferð í Reykjavík
um verslunarmannahelgina.
Svo rann upp hinn langþráði og stóri
dagur! Við hittumst við innganginn í
Stjörnubíó því að við ætluðum saman í
bíó. Mér leist ofsalega vel á hann þeg-
ar ég sá hann og fór að tala við hann
og mér virtist að honum litist jafn vel á
mig. Við töluðum mikið saman í bíó-
inu og kvöddumst svo þegar myndin
var búin því að mamma og pabbi biðu
eftir mér. Við ákváðum að halda
áfram að skrifast á og fara aftur í bíó
þegar ég kæmi næst í bæinn.
Og nú bíð ég ofsalega spennt og
hlakka mikið til. Já, ég sé alls ekki
eftir að hafa sett nafnið mitt í penna-
vinadálk Æskunnar.
Ein 13 ára á Blönduósi
L
51