Æskan - 01.01.1988, Síða 9
stelpur kepptu og því var ekki sjálfgefið
að komast í hann. Það var svo enn
^nægjulegra og óvæntara þegar tilkynnt var
að ég hefði einnig komist í 6 manna hóp-
inn. Þá vissi ég reyndar að ég gæti ekki
unnið keppnina því að búið var að kjósa
fegurðardrottningar allra heimsálfanna
°g ég var ekki þar á meðal. Aðeins
stúlka, sem slíkan titil hefur hlotið, getur
unnið. En að komast í 3. sæti var svo
miklu meira en ég átti von á og þarf varla
að lýsa þeirri ánægjutilfinningu sem
greip mig þegar það var kunngert."
- Hvað finnst þér um úrslitin?
„Það kom skemmtilega á óvart að
austurríska stelpan vann keppnina því að
flestir bjuggust við að ungfrú Venezúela
gerði það.“
- Hvað fékkstu í verðlaun?
„Ég fékk bikar og 66 þúsund krónur.
Sú sem var í öðru sæti fékk 300 þúsund
kr. en sigurvegarinn 1.8 milljónir. Marg-
ir hafa talað um að miðað við hvað kostar
að halda svona keppni, sem sjónvarpað
er út um allan heim, hefðu verðlaunin átt
að vera hærri.“
Anna Margrét kveðst hafa tekið
keppnina hæfilega alvarlega, hún hafi að-
eins fundið fyrir streitu í stutta stund
þegar viðtal var tekið við hana. Hugsun-
tn fór á fleygiferð þegar spurt var um
ísland því að hún vissi að hún yrði að
koma skilmerkilegu svari frá sér á nokkr-
um sekúndum. Hún segist lítið sem ekk-
ert hafa hugsað um sjónvarpsvélarnar,
hugurinn hafi aðeins verið bundinn því
sem var að gerast á sviðinu. Góð
stemmning var í Albertshöll þar sem
keppnin fór fram.
Anna Margrét kynntist mörgum stúlk-
um í keppninni. Þær stríddu henni á því
að íslendingar byggju í snjóhúsum og
þjóðbúningur þeirra væri fiskimanna-
þjóðbúningur.
„Það verður bara að segjast eins og er
að þjóðbúningur okkar er hallærislegur,"
æskan
„Ákveðin í að koma heilbrigð út úr þessu öllu,
segir Anna Margrét. „Hann þyrfti að
vera meira í takt við tímann. Fleiri en ég
eru á þeirri skoðun.“
- Hvernig fannst þér íslensk blöð
fjalla um keppnina?
„Fyrir keppni fannst mér þau vænta of
mikils af mér. Óþægilegt var að hugsa þá
hugsun til enda að ef til vill kæmist ég
ekki í 12 manna hópinn og margir yrðu
fyrir vonbrigðum. Mér finnst rangt af
blaðamönnum að gera ráð fyrir of miklu í
slíkri keppni. Dómnefnd í fegurðarsam-
keppni hefur í hendi sér hverjir komast í
segir Anna Margrét m.a. í viðtaiinu.
undanúrslit. Vandasamt er að gera upp á
milli 78 fallegra stelpna og má engu
muna í stigagjöf til að maður heltist úr
lestinni. - Rétt er að bæta við að umfjöll-
un íslenskra fjölmiðla um keppnina hef-
ur að öðru leyti verið góð.“
- Hefurðu fengið tilboð eftir keppn-
ina?
„Já, eitt frá fyrirsætuskrifstofu í
Lundúnum. Mér fannst það ekki vera
nógu gott til að ég færi að rífa mig upp
og setjast að erlendis.“
Við höldum áfram að tala um sýning-
9