Æskan - 01.01.1988, Blaðsíða 16
Aðdáendum svarað
... Alveg gífurlega þæ$
Bjarni Arason svarar spurningum aðdáenda
Svo fór sem vænta mátti. Margir tóku
tveim höndum tækifæri til að „rekja
garnirnar“ úr Bjarna Arasyni. Spurning-
ar voru af ýmsu tagi eins og þið sjáið - og
dulnefnin líka. Að sjálfsögðu var „sjúk-
legur aðdáandi“ eitt þeirra en meir komu
á óvart MX21 og 087.
Flestar spurninganna lúta að tónlist en
forvitna langar líka til að vita hvort
Bjarni sé alltaf góður strákur eða bara
þegar hann er í heimsókn hjá ömmu - og
ofarlega í hugum sumra er hvaða stærð af
skóm hann notar.
Að sjálfsögðu skín aðdáunin ljóslega í
gegn:
„Ætlarðu ekki að reyna að semja lög og
texta (vonandi)? Finnst þér ekki alveg
yndislega gaman að syngja og það svona
rosalega vel?“
Og tvær vinkonur biðja um skýringu:
„Af hverju ertu svona sætur?“
Hér er ekki rými fyrir öll þau
skemmtilegu bréf sem Bjarna bárust en
við getum ekki stillt okkur um að birta
glefsur úr einu:
Kæri ungi maður!
Ég veit að ég er sein að skrifa en vonandi
fáið þér þetta bréf samt.
Ég á heima á sveitabæ í . . . Hvað finnst
yður um sveitafólk? Ég á þá við svona al-
mennt.
Hvað fmnst yður um að syngja á tónleikum
og ýmsum skemmtunum? Hvernig myndi yð-
ur líka að fá söngvara með yður, t.d. mig (ég
er kvenkyns en samt (!) bara hrifin af söng
yðar)
Leikið þér á hljóðfæri? Ég leik á nokkur
hljóðfæri og hef komið fram bæði sem hljóð-
færaleikari og söngvari. En aldrei neitt svo
mjög opinberlega svo að mig langar virkilega
að reyna mig en aðeins með einhverjum góð-
um.
Hvað sem svari líður þá fmnst mér þér hafa
alveg gífurlega þægilega rödd.
Að lokum: Mynduð þér vilja svara þessu
bréft þó að það verði ekki birt í Æskunni?
Gerið það, ég bið yður!!
Yðar einlæg,
Samviska raddarinnar.
16
Og þá er ráð að vinda sér í spurning-
arnar. . .
Hvar og hvenær ertu fæddur?
í Reykjavík 13. júlí 1971.
í hvaða stjömumerki?
Krabbanum.
Hefur þú átt heima annars staðar?
Já, á ísafírði í fjögur ár, 3-7 ára.
Hve mörg svstkini áttu?
Fjögur, einn bróður og þrjár systur.
Er Bjarai fullt nafn? Hvað ertu kallaður?
Ég heiti Bjarni Andrés en er alltaf kallaður
Bjarni.
Viltu láta kalla þig Bjaraa látúnsbarka,
Bjaraa Presley eða einfaldlega Bjaraa Ara?
Fyrir alla muni aðeins Bjarna eða Bjarna Ara.
Fyrst í stað hafði ég ekki mikið á móti viður-
nefninu látúnsbarki en það er orðið leiði-
gjarnt.
Hve hár ertu? Hve þungur?
Ég er 70 kíló og bara alveg nógu hár. . .
Hveraig ertu eygður? Hvemig er hárið litt?
Dökkskolhærður og bláeygur. . . .Hárið er
ekki farið að þynnast að ráði - ef einhver velt-
ir því fyrir sér. . .
Hvaða skónúmer notar þú?
42 - og er oftast í rósóttum sokkum. . .
í hvaða skóla ertu - og hefur þú verið?
í fornámi í Iðnskólanum - áður í Hóla-
brekkuskóla og Árbæjarskóla.
Hefur þú verið í tónlistarskóla? Á hvaða
hljóðfæri hefur þú lært?
Já. 1 tónlistarskóla í tengslum við Lúðrasveit
Árbæjar og Breiðholts í fimm ár. Kennari var
Ólafur L. Kristjánsson. Og í Tónlistarskóla
Reykjavíkur í eitt ár hjá Ásgeiri Steingríms-
syni. Ég hef lært á trompet og lokið þriðja
stigi. Það er ekki ólíklegt að ég haldi því námi
áfram síðar.
Hefur þú lært að syngja? Hefur einhver leið-
beint þér?
Nei.
Hefur þú alltaf haft mikinn áhuga á tónlist?
Já, svo lengi sem ég man eftir mér.
Hefur þú ekki áhuga á öðru?
Mér gefst ekki mikill tími til að sinna öðru en
ég leik billjarð annað veifið.
Hefur þig alitaf langað til að verða söngv-
ari?
Nei, það kom raunar svona allt í einu þegar
ég kom úr mútum.
Hve gamall varstu þegar þú söngst fyrst op-
inberlega?
Ég var fjórtán ára þegar ég söng með hljóm-
sveitinni Vaxandi (hún hét Presleyvinafélagið
í fyrstu - ) í skólum í Reykjavík. Ég tók svo
þátt í söngvarakeppni á Bindindismótinu í
Galtalækjarskógi 1986, nýorðinn 15 ára.
Hefðir þú tekið þátt i látúnsbarkakeppninni
ef Hjalti hefði ekki skráð þig?
Sennilega ekki. Ég vissi af keppninni og hafði
hugleitt þetta en í rauninni ætlaði ég mér ekki
að taka þátt í henni.
Ertu sviðshræddur?
Ég kvíði því alltaf að koma fram en eftir að ég
er kominn á sviðið hverfur sú tilfinning alger-
lega.
Hefur þér farið fram eftir að þú tókst þátt í
keppninni?
Já, það tel ég víst. Ég hef sungið mikið síðan.
Hvað hefur þú starfað eftir keppnina?
Ég hef haft nóg að gera sem söngvari.
Semurðu lög - eða texta?
Nei, ég hef ekki gert það. Að því kann að
koma en mér finnst of mikið um að menn láti
frá sér tónsmíðar sem ekki eru nógu vandað-
ar.
Hver er eftirlætissöngvari þinn?
ÆSKAN