Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1988, Síða 10

Æskan - 01.01.1988, Síða 10
arstörfm. Anna Margrét segir að sýningastelpur, sem eru í fullu starfi er- lendis, þurfí að leggja mikið á sig til að standa í stykkinu. Samkeppnin er hörð því að hundruð stúlkna fýsir að komast í hvert starf sem losnar. Hún ráðleggur stelpum sem hafa mikinn áhuga á sýn- ingarstörfum hérlendis að gefa kost á sér í keppni á borð við Elite. Það sé ágætt að byrja þar. Allar stelpur mega senda mynd af sér og freista þess að komast í sjálfa úrslitakeppnina. Hér á landi er aft- ur á móti ekki hægt að lifa af fyrirsætu- störfum, aðeins hægt að hafa þau aðauka- staríi. En hefur orðið breyting á högum Önnu Margrétar eftir glæsilegan árangur í Ungfrú heimur (Miss World) keppn- inni? „Nei, fremur lítil,“ svarar hún. „Ég fmn helst fyrir því að fólk hafi mig undir smásjá. Ég veit að margir velta fyrir sér klæðnaði mínum og mörgum finnst skrýtið að sjá mig í gallabuxum. Vinir mínir hvísla ýmsu að mér sem fólk er að slúðra úti í bæ. Ég veit líka að sumum finnst hallærislegt að ég skuli aka um á gömlum skóda. Nei, það verður enginn milli á því að verða ungfrú ísland! En skódinn kemst leiðar sinnar og það er fyrir öllu.“ - Reynirðu nokkuð að ganga í augun á fólki? „Nei, ég reyni að vera sjálfri mér sam- kvæm, haga mér eins og mér sjálfri líkar best. Ég er ákveðin í að koma heilbrigð út úr umstanginu sem fylgir því að vera fegurðardrottning. Það er mikið álag á fegurðardrottningum. Þess vegna er ég á móti því að stúlkur undir tvítugu taki þátt í fegurðarsamkeppni. Persónuleik- inn þarf að vera nokkuð mótaður. Það þarf að hafa bein í nefinu til að standast ýmsar freistingar og vitleysu.“ - Hefurðu fengið mikil viðbrögð frá krökkum eftir að þú hrepptir 3. sætið? „Já, stelpur á aldrinum 10-13 ára hafa hringt mikið til mín eða skrifað. Ein 9 ára úr Árbænum hringdi og fannst ég eiga skilið að verða í 2. sæti en ungfrú Venezúela í 1. sæti. Stelpurnar hafa verið að biðja mig um myndir og eiginhandar- áritun. Strákarnir eru aftur á móti feimn- ir og láta sér nægja að kalla á eftir mér á götu. Þeir spyrja hvort ég sé ekki þessi fegurðardrottning! “ Gm loftin blá ■ Anna Margrét hefur, eins og kom fram í upphafi viðtalsins, starfað sem flugfreyja í rúmt ár. Hún er sex vikur í senn í millilandaflugi, eina viku í innan- landsflugi en á svo vikufrí. Mest hefur hún flogið til þriggja landa á einum degi. Þegar hún sótti um starfið voru mörg hundruð umsækjendur en aðeins 18 ráðnir. Henni kom í hug að gaman væri að prófa að sækja um og datt í lukkupott- inn. Hún segir að starfið bjóði upp á mikla fjölbreytni og í því kynnist hún öðrum þjóðum. Það eina, sem henni finnst þreytandi, er að venjast tímamis- muninum. Til dæmis er fimm klukku- stunda munur á Flórída og Reykjavík. Það ruglar öllum svefnvenjum. - Finnurðu aldrei fyrir flughræðslu? „Nei, aldrei.“ - Hvernig er að vera flugfreyja þegar farþegarnir verða æfir vegna seinkunar eða af öðrum ástæðum? „Það mæðir margt á flugfreyjum þó að þær geti ekki gert að því þegar áætlun seinkar. Við tökum öllum kvörtunum með jafnaðargeði því að við vitum að þeim er ekki beint gegn okkur heldur flugfélaginu. Ég hef farið á svokallað já- kvæðni-námskeið og það hefur hjálpað mér heilmikið til að skilja farþegana og átta mig á því hvernig ég á að bregðast við reiði þeirra.“ Sextán ára á föstu ■ - Segðu okkur frá kærastanum þín- um? „Hann heitir Árni Harðarson og er á fyrsta ári í lögfræði. Við höfum verið saman frá 16 ára aldri, - reyndar með nokkrum hléum. Við kynntumst í Fella- helli. Ég sá hann fyrst þegar við vorum 12 ára. Segja má að það hafi verið ást við fvrstu sýn því að ég hreifst strax af hon- um. Við eigum núna heima í leiguhús- næði á Seltjarnarnesi og búskapurinn gengur vel. Það ríkir algert jafnrétti á heimilinu. Við eldum og þrífum til skipt- - Sumir hafa litla trú á æskuástarsam- böndum. Hvað segirðu um það? „Ég hef einmitt oft fengið að heyra að ungt fólk í ástarsambandi glati æsku sinni. Ég get ekki tekið undir það. Svo er sagt að þannig sambönd séu dauðadæmd fyrir fram. Það fer auðvitað eftir ein- staklingunum sjálfum. Við Árni höfum, eins og mörg önnur pör, reynt bæði sæld og þraut og lært mikið. Við virðum hvort annars áhugamál og eigum enn okkar einkavini. Mörg ung pör gleyma að leggja alúð við persónuleika sinn hvort í sínu lagi og það stefnir samböndum oft í voða. Bæði eiga rétt á að sinna áhugamál- um sínum og bæði verða að taka tillit til hins ef áhugamálin eru ekki þau sömu. Sambúð veltur fyrst og fremst á sam- vinnu.“ - Áhugamál þín. Hver eru þau? „Ég les mikið, er í líkamsrækt tvisvar eða þrisvar í viku til að halda mér í þjálf- un og mér þykir gaman að hitta fólk.“ - Að síðustu: Hvað um gagnrýni sem fram hefur komið á fegurðarsamkeppni? „Öll gagnrýni á rétt á sér. Sumir tala um að fegurðarsamkeppni sé nokkurs konar gripasýning og þeir um það. Það er þeirra skoðun. Ég leyfi fólki að fjasa um þessi mál ef því líður betur á eftir. Mér finnst óþarfi að fólk sé með þau á heilanum. Fegurðarsamkeppni er stað- reynd og verður hvort sem mönnum lík- ar betur eða verr,“ segir Anna Margrét Jónsdóttur, fegurðardrottning íslands og bronsverðlaunahafi í keppninni um Ung-

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.