Æskan

Årgang

Æskan - 01.01.1988, Side 26

Æskan - 01.01.1988, Side 26
Þrautir Einhver var aö biðja um fleiri tegundir af krossgátum. Nú kemur sú gamla, góöa aftur. Þið þekkið hana flest. Við verðlaunum þrjá. 5k0 P Verkamaðurinn: Mig langar að spyrja hvort ég fái ekki hækkun núna. Forstjórinn: Nei, það gengur ekki. Verkam.: En þér lofuðuð mér uppbót. Forstjórinn: Já, ef ég yrði ánægð- ur með þig. Verkam.: Eruð þér það ekki? Forstjórinn: Ekki fyrst þú biður um launahækkun. Leiðsögumaður: Gremjulegt að nú skuli vera þoka. Héðan er svo afar gott útsýni í björtu. Ferðamaður: Hve langt er þá hægt að sjá? Leiðsögum.: Eins langt og maður vill. Ferðam.: Kannski til Ameríku. Leiðsögum.: Miklu lengra, alla leið til tung^r^^^^ Spákona nokkur spáði fyrir bónda einum og sagði honum margt ótrúlegt. Þegar hún hafði lokið máli sínu bjóst bóndinn til að kveðja. Spákonan krafði hann um greiðslu en þá sagði bóndinn: - Fyrst þú getur séð óorðna hluti mátti þér vera ljóst að ég ætlaði aldrei að greiða þér fyrir spádómana. Sigga: Hvað gerirðu þegar þú sérð laglega stúlku? Edda: Ég horfi lengi á hana - og legg svo frá mér spegilinn! Ástfanginn piltur: Þú ert sál lífs míns, þú ert eins fögur og vötnin blá, bros þitt er eins og morgun- roðinn, augu þín eins og heiður himinn og þú ert mitt eina skjól í drunga lífsins. Stúlkan: Er þetta bónorð eða um- hverfls- og veðurlýsing? (Tekið úr Dvöl 1934-35) Sendandi: Þórlaug Ágústsdóttir, Rauðagerði 31, Reykjavík. 26 ÆSKAN

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.