Æskan - 01.01.1988, Blaðsíða 44
Þú tapar nær 2.5 lítrum
af vatni á dag!
Þó að þér finnist þú ekki reyna neitt á
þig eða svitna tapar þú um einum lítra af
vatni á dag gegnum húðina og við önd-
un. Þegar þú svitnar mikið verður
vökvatapið mun meira. Prófaðu að halda
á spegli fyrir framan munninn þá sérð þú
gufuna.
í gegnum þvagfærin losum við okkur
líka við slatta af vatni. Allt þetta verðum
við að bæta okkur upp þegar við drekk-
um og borðum.
Því meira vatn sem líkaminn tapar því
meira þarft þú að drekka.
Mundir þú setja 15 sykurmola
út í vatnsglas og drekka það?
Örugglega ekki! Veistu að ein dós af gosi
inniheldur sama magn af sykri og er í 15
sykumolum? Ef þú svalar þorstanum
með gosdrykkjum þá fær líkaminn í
flestum tilfellum næringu sem hann ekki
þarfnast. Til þess að nýta þann sykur,
sem er í einni gosdós, þarftu að trimma í
að minnsta kosti hálfa klukkustund fyrir
hverja dós og ef þú gerir það ekki máttu
búast við að utan á þig setjist um 6 kíló
af spiki á einu ári.
Við vitum líka öll að sykur fer ekki vel
með tennurnar.
Skátaþáttur
Bandalag íslenskra skáta er í
áróðursherferð Jyrir „vatni“ — í sam-
vinnu við Heilbrigðisráðuneytið.
Markmiðið er að hvetja alla til að
drekka vatn við þorsta aj heilbrigð-
isástæðum. Að undanjörnu hejur
verið dreijt bæklingum og vegg-
myndum til að leggja áherslu á
þetta baráttumál. Hér á ejtir Jara
nokkur orð til umhugsunar — í tíma
töluð. Benjamín Árnason tók sam-
an.
Eins og áður hejur verið skýrt Jrá
hejur orðið sammæli með Æskunni
og BÍS um birtingu skátaejnis í
blaðinu. Steján Már Guðmundsson
mun haja umsjón með því. Æskan
Jagnar samstarji við skáta. í næsta
blaði verður sagt Jrá Alheimsmóti
skáta sem haldið var í Ástralíu í
janúar.
vatu1-
Samantekt: Benjamín Árnason
Meginhluti líkamans
er vatn!
Um það bil 60% af þyngd þinni er vatn.
Það er um allan líkamann, í blóðinu,
húðinni og vöðvunum. Vatnið hjálpar
okkur til við að flytja næringarefni um
líkamann og losar okkur við úrgangs-
efni. Það má því óhikað segja að vatnið
sé okkur lífsnauðsynlegt. Við getum lif-
að lengur án matar en vatns.
Þegar þig þyrstir
þá fáðu þér vatn!
Enginn drykkur er í raun eins svalandi
og ískalt vatn. Við sem eigum heima á
íslandi erum svo heppin að eiga drykk
sem allur heimurinn öfundar okkur af.
Veistu að í Danmörku kostar vatn nærri
því jafnmikið og mjólk? Skrúfaðu frá
krananum og fáðu þér vatn. Þú færð
ekki betri svaladrykk en hreint og tært
vatn.
44
ÆSKAN