Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1988, Page 47

Æskan - 01.01.1988, Page 47
Æskan útbreiddasta og mest lesna bamablaðið Áskrifendur Höfuðb.sv. þéttbýli Dreifbýli _______ á landsb.___________________ Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Hagvangs er Æskan útbreiddasta og mest lesna barnablaðið á íslandi. Á heimilum 18.6% þátttakenda í könnuninni er Æskan keypt í áskrift. Það eru næstum því helmingi fleiri áskrifendur en hjá því blaði sem hefur næstmestu útbreiðslu. Af hverju er Æskan svona útbreidd og vinsæl sem raun ber vitni? Varla er hægt að finna einhlíta skýringu á því. En Ijóst er að 90 ára gömul á Æskan enn samleið með upprennandi kynslóð. Hún er síung í anda og fylgist vel með tíðarandanum. Hún hefur skotið djúpum rótum í hugskoti æskufólks. Æskan býður upp á fróðlegt og skemmtilegt lesefni. Hún er vettvangur barna- og unglinga til að koma sjónarmiðum sínum og hugðarefnum á framfæri. Æskan stefnir fram á við - hún er blað framtíðar. ÆSKAN

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.