Æskan - 01.03.1988, Page 11
~ ^Vona heyrist í slöngunni:
sssssss, sagði Magga.
~ Ssssssss, sögðu börnin
^8 suðuðu eins og flugur.
jf1 nema Jalli og Kalli.
eir þutu upp á borð og æptu:
' Slöngur bíta!
Vlð erum slöngur!
Vlð bítum!
Svo hoppuðu þeir borð af borði
þóttust bíta krakkana.
eyndar bitu þeir ekki í alvöru,
sv° slæmir voru þeir ekki.
Samt voru sumir hræddir
°g fóru að væla.
rir urðu reiðir
°g reyndu að lemja.
Pað voru mikil læti.
sveiflaði Magga sér af stað
^haðlinum sínum.
Uun greip Jalla og Kalla
°g sveiflaði þeim í sætið sitt.
Ekki þessi læti! hrópaði hún.
'Núfáallir blöð
teikna slöngur.
PP með pennaveskin!
p^ir þutu upp til handa og
þta og sóttu pennaveskin sín.
egar þau voru búin að metast á
Pmulitla stund
Uln það hver ætti
lnsta pennaveskið
0ru þau að teikna.
Þeim þótti svo gaman að teikna.
Þau teiknuðu fínar slöngur
sem voru alveg eins og S.
Allir teiknuðu slöngur
nema Jalli og Kalli.
Þeir teiknuðu bíla.
Jalli teiknaði kranabíl
en Kalli öskubíl.
Á eftir héldu börnin
blöðunum á lofti og sögðu:
- Sssssss, ssssss.
Öll nema Jalli og Kalli.
Þeir sögðu:
- Rrrrrrr, rrrrrr.
Þegar hringt var út úr
síðasta tíma
fóru börnin heim
með slöngurnar sínar
og sungu söngva um slöngur
alla leiðina.
Nú vissu þau að ess
var eins og slanga
og sagði ssssss.
Næstum allir vissu það
- bara ekki tveir.
- Hvað segir slangan?
spurði Magga þegar Jalli
og Kalli voru að klæða sig
í útiskóna.
- Rrrrrrr, sögðu þeir
og sýndu henni
myndirnar af bílunum.
Magga hristi höfuðið.
- Ég sagði að það skipti
ekki máli hver væri fyrstur inn
heldur hvað menn lærðu
þegar inn er komið, sagði hún.
- Það er alveg rétt, sögðu þeir
og hlupu af stað heim á leið
með fínu bílana sína.
Þeir voru glaðastir af öllum
þó að þeir hefðu ekki hugmynd
um hvað slangan segir.
Magga horfði á eftir þeim
og hristi höfuðið.
Æi jæja, hugsaði hún.
Þeir lærðu þetta ekki núna
en kannski læra þeir það næst
eða þarnæst.
Gaman er að geta þess hér að Iðunn fékk ný-
lega verðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkur-
borgar fyrir bestu barnabókina 1987. Bókin
heitir Olla og Pési. (AB)
11