Æskan - 01.03.1988, Qupperneq 13
Policman’s Third Ball“, tvíleika
Mark og gítarsnillingurinn Chet Atk-
m3 gamla sígildinginn hans Johns
Lennons, „Imagine". Útkoman er
nokkuð athyglisverð þó svo hún
hverfi e.t.v. í skuggann fyrir lögum
Peters Gabríels, Jacksons Browns,
Kötu Bush, Lous Reeds, Erasure,
Duran Duran (?!) o.m.fl. - hvað vin-
sældir varðar.
Bítlavinafélagið
Kæri Poppþáttur.
Mig langar til að biðja þig um upp-
lýsingar um Bítlavinafélagið.
íris, Kirkjubœjarklanstri.
Bítlavinafélagið mun hafa orðið til
begar Jón Ólafsson, útvarpsmaður og
þáverandi Possibillís-hljómborðsleik-
ari> setti upp sérstaka minningardag-
skrá um John heitinn Lennon, fyrr-
verandi forsprakka Bítlanna bresku. í
kjölfarið fylgdi platan „Bítlavinafé-
lagið til sölu“. Þar fluttu þeir Jón áð-
urnefndi, Eyjólfur Kristjánsson
söngvari, Stefán Hjörleifsson gítar-
leikari, Haraldur Þorsteinsson bassa-
leikari og Rafn Jónsson trymbill
nokkur lög sem John Lennon hafði
gert vinsæl, s. .s „Oh Yoko“ og
nStand By Me“. Ári síðar sendi Bítla-
vinafélagið frá sér plötuna „Bítlavina-
félagið býr til stemmningu“, en á
henni voru frumsamin lög í anda
Bítlanna. Til gamans má geta þess að
Rafn, trymbill Bítlavinafélagsins, er
sa sami og leiðir hina ágætu hljóm-
sveit Grafík.
Billy Idol
Kæra Popphólf!
Getur þú sagt mér frá Billy Idol og
haft veggmynd af honum?
Birkir.
Billy Idol fæddist 30. nóvember
1955 í Englandi. Honum var gefið
nafnið William Broad (Vilhjálmur
Breiði) en þegar hann fór að syngja
með hljómsveitum varð að breyta
nafninu lítillega. Billy Idol tók virkan
þátt í pönkbyltingu Sex Pistols og
Clash ’76-’77. Þá söng hann með
hljómsveitinni Generation X. Hljóm-
sveitin náði þokkalegum vinsældum
en Billy var ekki ánægður. Hann
fluttist til Bandaríkjanna og komst
undir verndarvæng umboðsskrifstofu
bárujárnssveitarinnar Kiss. Umboðs-
skrifstofan kunni tökin á poppmark-
aðnum og von bráðar var hann kom-
inn með röð laga í efstu sæti banda-
ríska vinsældalistans, s.s. „Eyes
Without A Face“ (Augu án andlits),
„Sweet Sixteen“ (Indæl sextán) og
„Mony, Mony“. (Rétt stafsetning er
raunar money og merkingin peningar
en hér fer best á að segja: Aurar, aur-
ar)
Æskan hefur þegar birt veggmynd
af Billy Idol en ef margir biðja um
nýja veggmynd af honum er til í
dæminu að orðið verði við þeim ósk-
um.
Whitney Houston
Hæ, hæ, kæra Popphólf!
Ég veit ekkert um Whitney Houst-
on, ég á engar myndir af henni og
engin plaköt með henni. Það væri æði
ef þið bættuð úr því.
Auður Kristírt,
Kambaseli 38, Reykjavík.
Ef þú flettir upp í nokkrum síð-
ustu tbl. Æskunnar þá getur þú séð
að Withneyju hafa verið gerð nokkuð
góð skil, bæðið í myndum og máli.
Hún er meira að segja á veggmynd í
þessu blaði. Við það er að bæta að
breska blaðið RM hefur tekið saman
hsta yfir söluhæstu poppara beggja
vegna Atlantshafsins árið 1987. Nið-
urstaðan varð þessi:
1. Whitney Houston með 387 stig
(var nr. 2 ’86)
2. U2 með 383 stig (komst ekki á
blað ’86)
3. Madonna með 378 (var nr. 1 ’86).
13