Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1988, Síða 20

Æskan - 01.03.1988, Síða 20
Æskumaður Frá ýmsum hliðum Vilt þú leggja góðu máli lið? Hilmar Jónsson stórtemplar skrifar: Einu sinni sem oftar fór ég rétt fyrir jól á AA-fund en svo nefnist félags- skapur áfengissjúklinga sem reyna að hjálpa hver öðrum til að lifa lífinu án áfengis og vímuefna. Margir þátttak- endur voru mjög ungir. Mér eru minnisstæð orð eins þeirra sem þarna voru. Hann sagði: „Nú standa vonir til að ég verði ófullur um þessi jól. Áður var því öðru vísi farið. Þá svaraði ég konu minni ætíð á sama veg þegar hún bað mig um föt handa dætrum okkar: „Geturðu ekki stækkað kjólana þeirra?“ Síðan fór ég beina leið niður í áfengisútsölu og keypti áfengi fyrir mun hærri upphæð en konan bað um og var drukkinn allar hátíðarnar. Nú vona ég,“ sagði hann, „að ég verði ódrukkinn um þessi jól og laun mín fari í jólagjafir til fjölskyldunnar en ekki í brennivín.“ Þessi saga varpar ljósi á áfengisböl- ið í landinu. Vísindamenn segja að af hverjum tíu, sem neyta áfengis, verði að minnsta kosti einn áfengissjúkl- ingur. Öllum foreldrum þykir vænt um börnin sín og þeir vilja flest fyrir þau gera. Áfengisneysla getur hins vegar leitt hvern sem er í blindgötu eins og þann sem hér var frá sagt, svipt hann viti og vilja og að lokum gert hann að rekaldi. Því er það að við bindindismenn viljum minnka að mun áfengis- og fíkniefnaneysluna og draga með því úr áfengisbölinu. Hér getur unga fólkið haft veruleg áhrif. Margt ungt fólk hefur hætt að reykja. Samt er það staðreynd að reykingar eru síður en svo hættulegri fyrir heilsu fólks heldur en áfengi. Enginn veit fyrir hvort hann þolir 20 áfengi. Öruggasta ráðið er að byrja aldrei. Æskuárin eru mikill mótunartími í lífi hvers einstaklings. Þá liggja vegir til allra átta eins og segir í kvæðinu. Eitt erfíðasta vandamál þjóðanna nú á dögum er baráttan við vímuefn- in. Vilt þú leggja góðu máli lið? Eitt þeirra félaga, sem berjast ge§n áfengisbölinu, er Góðtemplarareglan’ einmitt sá félagsskapur sem gefur ut þetta blað. Vilt þú leggja góðu máli lið og ger' ast þar liðsmaður? Fyrir hann eru föstudagar upphaf leiðinda.. ÆSK^

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.