Æskan

Volume

Æskan - 01.03.1988, Page 26

Æskan - 01.03.1988, Page 26
Skátaþáttur 80 ár eru nú liðin frá fyrstu skátaútileg- unni á Brownsea-eyju - sem við getum nefnt Brúnsjávar-eyju hér. Gerðu þér í hugarlund að nú sé árið 1907 - þú sért 12 ára og fáir boð frá frægum hershöfðingja og þjóðhetju um að fara með honum í einnar viku útilegu til eyjar þar sem eitt sinn var krökkt af sjóræn- ingjum og smyglurum. Heldurðu að þú tækir ekki boðinu tveim höndum? Þetta gerðist einmitt fyrir 80 árum. Robert Baden-Powell hershöfðingi bauð 21 dreng með sér í útilegu til þess að reyna í verki skipulag ungmennastarfs sem hann hafði gert sér í hugarlund að vel gæti tekist og orðið mörgum til ánægju og þroska. Ef til vill hcfði Baden- Powell ekki unnið frekar að þessum mál- um ef allt hefði ekki gengið að óskum. En tilraunin heppnaðist og nú starfa um 18 milljónir drengja og stúlkna á þann hátt sem hann hafði hugsað sér og í anda hugsjóna hans. Fyrirheitni staðurinn er lítil eyja og fmnst ekki á landakorti þó að vel sé að gáð. Hún er í sunnanverðu mynni Temps-ár (Thames) um fimm ferkíló- metrar að stærð. Ástæðan til þess að Ba- den-Powell valdi þessa cyju var einfald- lega sú að hann þekkti eigandann. Tveir menn voru honum til aðstoðar, vopnabróðir hans, Kenneth McLaren, 26~ og frændi hans Donald Baden-Powell. Drengjunum var skipt í fjóra flokka: Spóa, Úlfa, Uxa og Hrafna. Útilegan hófst 1. ágúst 1907 en kvöldið áður höfðu allir þátttakendur verið viðstaddir varð- eld og þar voru þeir boðnir velkomnir. Baden-Powell hafði einnig í hyggju að athuga hvernig reyndist að skipa saman í flokka drengjum sem voru misvel menntaðir og höfðu alist upp við ólík kjör. Því bauð hann drengjum bæði frá ríkum og fátækum fjölskyldum. Hann ritaði foreldrum þeirra bréf, skýrði ná- kvæmlega hver væri tilgangur útilegunn- ar og sagði fyrir um hvað skyldi haft meðferðis. Ekkert átti að fá að ráðast af sjálfu sér. Baden-Powell vakti drengina á hverj- um morgni með því að blása í Cudo- hornið, villidýrahorn sem hann hafði komið með frá Afríku. Fyrir hádegi æfðu þeir sig í að rekja spor og að skerpa athyglina. BP kenndi það sjálfur enda var þetta á kjörsviði hans. Liðsforingi úr strandgæslunni kenndi hjálp í viðlögum og brunavarnir og eftir hádegi fóru flokkarnir á „hvalveiðar“ á tveimur bát- um sem hann hafði fengið að láni. Þegar kvölda tók var varðeldur tendraður og BP sagði frá ævintýrum sínum í Indlandi og Afríku. Um nætur héldu flokkarnir vörð. BP hafði gaman af því að reyna að sleppa fram hjá vörðunum! Allt starf fór fram eftir flokkakcrfinu. Hver flokkur hafði sitt eigið svæði og Baden-Powell reyndi eftir frcmsta mcgni að styrkja flokksandann, anda vináttu og einingar innan hvers flokks. Tilraunin á Brjáns-eyju heppnaðist mjög vcl. Hugmyndir BP höfðu reynst framkvæmanlcgar. Drengir af ólíkum uppruna höfðu verið saman í útilegu og voru orðnir góðir vinir. Þcir höfðu lært margt og rcynt. Þcir voru farnir að skilja hvað í því fólst að vera viðbúinn. (Úr Skátaforingjanum; frcttabrcfi fyrir cldri ská,a' - Þýtt úr cnsku) ÆSKtf

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.