Æskan - 01.03.1988, Page 48
gæludýrasýningin
Það verður ábyggilega líf og f]ör í Reiðhölliniu i
Víðidal dagana 16. og 17. apríl. Þar verður haldin
gæludýrasýning með glæsibrag.
Ekki er að efa að katta-eigendur fjölmenni með
húsprýði sína því að meðal atriða er fegurðarsam'
keppni katta. Verðlaunin eru ekki heldur af lakara
taginu: Sá köttur sem þykir mest augnayndi
glæsta styttu og eru kölluð Morris-verðlaun. Það
þykir hinn mesti vegsauki fyrir köttinn og þanu
sem hefur þann heiður að vera á heimili með hon-
um!
Að sjálfsögðu verða líka hundar á svæðinu. ÞeU
munu leika hstir sínar og við vitum að þeir eru
ótrúlega leiknir enda hafa þeir verið við æfrngar ha
því í nóvember. Þjálfarar hafa náðarsamlegast feng'
ið að fylgjast með þeim og mun það ekki hafa spiÞ1
fyrir góðum árangri.
Okkur rámar reyndar í að hundar og kettir láu
stundum ófriðlega er leiðir þeirra skerast en vaent'
anlega verður séð til þess að slíkt gerist ekki á sýn-
ingunni. Annars gæti allt farið í hund og kött! Svo
kann vel að vera að dýrin, sem koma fram, séu hátt
hafm yfir hátterai Högna vinar okkar - hvað þa
pabba hans! - og hugleiði ekki einu sinni að standa
í illindum. Við höfum líka séð hugðnæmar ljós'
myndir af vináttu hunda og katta og minnumst
þess að í sveitinni forðum hafi samkomulagið verið
giska gott á stundum. Við þykjumst því vita $
ýmis gangur sé á þessu sem öðru.
Þeir sem drífa sig á sýningarsvæðið geta lagt
sína um fiskagöngin og virt fyrir sér fiska í búrum
og súlum og getið sér til um fjölda þeirra. Sá g£t'
spakasti fær fiskabúr í verðlaun!
Sumum hugnast fuglar betur og þeir geta hlusí'
að og horft á smáa og stóra páfagauka og ýmsar
finkutegundir. Nagdýra-unnendur fá að sjá efth'
læti sín: Kanínur, hamstra, naggrísi og mýs.
Gunnar Vilhjálmsson hefur haft veg og vanda at
að koma upp sýningunni en verslunin Dýraríkið
stendur að henni.